- Advertisement -

’68 kynslóðin lét deigan síga

Hrafn Magnússon skrifaði:

„Hver var þessi 68- kynslóð spyr unga fólkið í dag. Er það kannski kynslóðin sem er eða verður 68 ára á þessu ári eða e.t.v. kynslóðin sem fæddist árið 1968? Hvorugt er rétt!

68-kynslóðin er nefnd eftir árinu 1968 sem markaðist af ungu fólki sem mótmælti ríkjandi viðhorfum, stéttarskiptingu og ójöfnuði, en ekki síst stríðsrekstri Bandaríkjanna í Vietnam.

Stúdentamótmælin sérstaklega í Frakklandi og V-Þýskalandi voru mjög fjölmenn og kröftug. Þessi mótmælabylgja gegn íhalsdsemi og úreltum viðhorfum eldri kynslóða og ríkjandi afla hafði líka mikil áhrif. Má alveg fullyrða að vinstriviðhorf voru ríkjandi hjá ungu fólki um allan hinn vestræna heim og þar með einnig á Íslandi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Margir vinstrimenn töldu að nú væri komin fram sú kynslóð sem ætti eftir að hafa mikil áhrif á þjóðfélagsgerðina. Sú varð hins vegar ekki raunin þegar á hólminn var komið. 68- kynslóðin lét deigan síga og hvarf í hið hefðbundna brauðstrit neyslusamfélagsins. Þessi kynslóð markaði spor í þjóðfélaginu á sínum tíma en síðan ekki meir. Við öðru var kannski ekki að búast.

Frjálshyggjan og einkavæðing hefur síðan náð sér á strik bæði hér á landi og annar staðar, svo ekki sé talað um Bandaríkin og Trump. Það er óheillaþróun.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: