Samfélag:
Ólafur Þórarinsson (Labbi í Mánum) skrifar:
Ef réttlæti og umhyggja búa í hjartanu er augljóst afhverju það er vinstra megin því hægra megin er drifkrafturinn gróðahyggja sem allar trúarstefnur og virtustu spámenn heims telja meðal verstu lasta mannsins því tilgangurinn er að kaupa sér vald og yfirburði á röngum forsendum enda verður að sussa á mannleg gildi því þau brjóta í bága við athæfið undir flestum kringumstæðum. Helsta keppikefli hægri aflanna er óbeislað athafnafrelsi en þá segir sig sjálft að þeir freku og ófyrirleitnu ná yfirhöndinni og móta því stefnu þar sem allt snýst um þeirra eigin hag eins og SDG sem berst nú fyrir niðurfellingu erfðafjárskatts (því hann á von á vænum arfi) og er gott dæmi um sjúkleikann því þó hann gæti lifað í þúsund ár á milljörðunum sínum væri einnig hægt að byggja t.d. hjúkrunarheimili sem leysti vanda hundruð fólks fyrir það sem hann lúrir á eins og ormur á gulli og tímir ekki einu sinni að borga eðlilegan skatt enda kjörorðið eilíf þjónkun við þá ríku (eins og við sjáum nú í stefnu borgarinnar).
Þá þarf hinn vinnandi þegn að byggja afkomu sína á þessum ótrygga veruleika því þjónustu við hann er útdeilt til braskara sem þá taka að sér almenna umönnun í gróðaskyni þar á meðal þá sem snýr að börnum, öldruðum og sjúkum svo framfærslugeta almennings sveiflast eftir gróðavæntingum gamblaranna og því algjör óvissa um hvort dæmið gangi upp. Þó markaðslögmálið eigi að setja sjálfu sér skorður er af og frá að það virki á svona litlu og spilltu skeri eins og við sjáum best á einu dýrasta landi heims þrátt fyrir allar okkar gjöfulu auðlindir, því þær er búið að einoka undir merkjum frelsis.
Drottnunarárátta
er fylgikvilli
auðsöfnunar…
Okkar helsta mein er allt það fólk sem staðsetur sig hægra megin því það dreymir um að tilheyra auðstéttinni þó fæst af því eigi séns innan um stórhvelin en samt virðist draumurinn lífseigur og því kýs það hrægammana yfir okkur aftur og aftur þó að fyrsta verk þeirra sé svo að kroppa augun úr þeim sem síst geta varið sig.
Drottnunarárátta er fylgikvilli auðsöfnunar og næsta stig er einræðistilburðir en þá fær viðkomandi aldrei nóg eins og við sjáum m.a. á útgerðar-og fjármálamafíunum en til þeirra hafa forsprakkar frjálshyggjunnar útdeilt mikilvægustu tekjustofnum þjóðarinnar svo allir innviðir grotna sem er augljósasta dæmið um að afrakstrinum er stolið í brask eða hann falin í fjarlægum skattaskjólum til að græða enn meira þar sem miðbær Selfoss er eitt lítið dæmi.
Þessa gúknum og frekju sáum við ljóslifandi í þjóðaratkvæðagreiðslunni nú síðast þegar þetta illþýði óttaðist að við sæjum leið í samningunum við ESB til að losa um hreðjatökin á þjóðinni, en þá sigaði það öllum sínum rökkum til að verja þau og blásnauður almúginn gjammaði með án þess að vita neitt um hvað málið snerist.
Þegar hins vegar kosið var um nýja stjórnarskrá 2012 sem hefði slegið á rányrkjuna beittu þessi öfl ofbeldi með bolabrögðum og að lokum með spilltu og vel þjálfuðu varðhundunum sínum á réttum stöðum í dómskerfinu.
Til að græða „hjúds“ og skarta heimskulegum hagtölum í heimi ágirndar og miskunnarleysis er keppst við að framleiða og pranga inn á allt og alla endalausu drasli sem gerir hönd og hugvit óþarft (nema til að stýra hjálpartækjum) svo hæfileiki til náttúrulegrar lífsbjargar og samskipta visnar upp en tæknirisarnir stjórna fólkinu eins og fígúrum í tölvuleik því tilgangur lífsins er horfinn, í stað þess að við nærum og ræktum okkar mannlegu gildi til sköpunar og þroska andans sem er lykillinn að framtíðinni.