Oddný Harðardóttir skrifaði:
„Fyrir nokkru stóð ég í röð við kassa í matvörubúð. Eldra fólk sem virtist hittast fyrir tilviljun en þekkst frá gamalli tíð stóð fyrir framan mig og töluðu saman. Hún sagðist vera búin að fá nóg af því að nær allur hennar peningur færi í húsnæði og hún ætti ekkert eftir til að kaupa afmælisgjafir fyrir barnabörnin. Hún ætlaði að segja já 29. ágúst og hún tryði því að vextir myndu lækka með inngöngu í ESB og upptöku evru. Hann ætlaði að segja nei. Svo sagði hann: ,,Viltu að barnabörnin þín verði kölluð í Evrópuherinn?” Konan sagði nei við því. Þá sagði karlinn: ,,Þá verður þú að segja nei 29. ágúst.”
Með því að bulla um Evrópuher er vonast til að fólk verði hrætt og þori ekki annað en að segja nei 29. ágúst.“
Vilhjálmur Þorsteinsson bendir hér á staðreyndir málsins. Það er enginn Evrópuher til og það stendur ekki til að stofna slíkan her!Ég ætla að segja já 29. ágúst – fyrir barnabörnin mín.
Svo er það hin hliðin á hermálinu, Hannes Hólmsteinn skrifaði:
„Jámenn hafa keppst við að gera gys að viðvörunum mínum um Evrópuherinn og herskyldu ungs fólks í aðildarríkjunum. Þeir ættu að lesa þessa skýrslu frá Evrópuþinginu.“