Jón Sigurgeirsson lögfræðingur skrifaði:

Jón Sigurgeirsson skrifar grein í Moggann í dag þar sem hann kemur inn á að eftir stofnun Samfylkingarinnar og endalok Alþýðuflokksins eigi verkafólk hvergi pólitískt skjól. Hann nefnir að flestir kjósendur Samfylkingarinnar í Reykjavík búi í Vesturbænum, séu vel menntaðir og með ágæt laun. Greinina endar Jón með þessum kafla:
Þessi þróun er hættulegust þar sem ákveðnir hópar verða út undan – stundum heilu landsvæðin. Nú er mikill uppgangur AfD í Þýskalandi sem er mjög langt til hægri, í fyrrum Austur-Þýskalandi – ríkjum sem hafa orðið út undan í efnahagslegu tilliti. Þó að við höfum ekki heilu kjördæmin sem hafa orðið út undan, þá eru svæði sem eru það.
Ef við berum saman samsetningu íbúa í Breiðholti annars vegar og Vesturbæjarins hins vegar kemur í ljós gífurlegur menntunarmunur og þar með tekjumunur. Þetta er hættuleg þróun.
Ég hvet vinstrimenn til að leggja rækt við að ná til þeirra sem þurfa á vinstrinu að halda og hlusta á þeirra áhyggjur og skoðanir. Lýðræðið byggist á því að allir hafi rödd, ekki að menntaelítan viti hvað verkamönnum er fyrir bestu. Án slíkrar aðkomu verkamanna að stjórnmálum er hætta á ófriðvænlegu samfélagi.
Þegar þrengir að, sem gerist alltaf öðru hverju, kalla verkamenn eftir því að útlendingar taki ekki af þeim störf. Við þurfum útlendinga til að halda uppi atvinnu. Við þurfum að móta hófsama stefnu í útlendingamálum, velja þá sem falla vel að íslensku samfélagi og leggja áherslu á að þeir aðlagist hér en aðgreinist ekki í hópa eftir þjóðernum.