- Advertisement -

Ég er frá Bosníu og ég er líka Íslendingur

Samfélag:

Jasmina Vajzovic skrifaði eftirfarandi grein. Greinin er birt hér og tekið undir með Jasminu. (Fyrirsögnina valdi ritstjóri Miðjunnar. Gott er að taka fram að ég borða ekki hákarl – sem sagt ekki allan Þorramatinn.):
Ég tala íslensku, held jól og borða þorramat. En kannski hef ég ekki lesið smáa letrið. Þarf ég að borða ALLAN þorramatinn?

Ég er greinilega búin að misskilja eitthvað grundvallaratriði. Eftir þrjátíu ár á Íslandi er mér enn sagt að ég sé ekki Íslendingur og verði það aldrei. Ekki einu sinni með góðri ástundun.

Nú vantar mig bara að sjá prófið. Og helst vita hver samdi það. 

Ég tala íslensku, held jól og borða þorramat. En kannski hef ég ekki lesið smáa letrið. Þarf ég að borða ALLAN þorramatinn? Er einn hrútspungur nóg eða er þetta metið eftir þyngd? Fást aukastig fyrir hákarl án þess að gretta sig? Og hvað verður um innfædda Íslendinga sem fara á þorrablót en borða bara hangikjötið og kartöflumúsina? Eru þeir á skilorði?

Svo eru það bókmenntirnar og sagan. Þarf ég að kunna allar Íslendingasögurnar utan að? Geta rakið ættir allra sem drápu einhvern fyrir að segja eitthvað óviðeigandi um afa þeirra? Eða dugar að fylgjast með íslenska kommentakerfinu, þar sem sú bókmenntahefð virðist enn vera í fullu fjöri?

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ég vil líka vita hvort jólahaldið mitt telji. Ég er alin upp við múslímskan menningarbakgrunn en held jól. Er það samþætting, menningarleg aðlögun eða þarf einhver að koma heim og taka út jólatréð? Og ef íslenskur maður trúir hvorki á Guð né upprisuna en heldur jól fyrir matinn og pakkana, erum við þá ekki að mestu leyti í sama félagi?

Sem stjórnmálafræðingur geri ég greinarmun á ríkisborgararétti, þjóðerni og þjóðarvitund. Þar fléttast saman réttindi, saga, menning, sjálfsmynd og tilfinningin fyrir því að tilheyra. Þetta er flóknara en matseðill og ættartala. Ég man að minnsta kosti ekki eftir þeirri fræðikenningu að maður með íslenskt eftirnafn og nettengingu hafi endanlegt úrskurðarvald yfir sjálfsmynd annarra.

Það sem mér finnst samt áhugaverðast er þetta orð: „aldrei“.

Því ef ég verð ALDREI Íslendingur, þá skiptir engu máli hversu vel ég tala tungumálið. Hversu lengi ég bý hér. Hvað ég legg til samfélagsins. Hvaða hefðir ég held í heiðri eða hversu vel ég þekki söguna. Þá er þetta próf sem ég má taka aftur og aftur, en má samkvæmt reglunum aldrei standast.

Það hefði nú verið ágætt að fá þær upplýsingar áður en ég lagði í súrmatinn.

Og þá langar mig að spyrja: Af hverju að krefjast þess að fólk aðlagist ef þið hafið þegar ákveðið að það fái aldrei að tilheyra? Hvað nákvæmlega þarf að gerast eftir að tungumálið er komið, vinnan, þátttakan og áratugirnir? Á maður bara að vera ævilangt í starfsnámi sem Íslendingur?

Mín upplifun af því að tilheyra Íslandi varð ekki til á einu augnabliki. Hún varð til í hversdeginum. Við að læra tungumálið og finna að ég gæti loksins sagt það sem ég meinti. Við að ala upp börnin mín, vinna með fólki, eignast vini og taka ábyrgð. Við að gleðjast yfir því sem gengur vel hér og láta mig varða það sem gengur illa.

Því það er líka hluti af því að tilheyra. Að finnast samfélagið koma manni við. Að vilja hafa áhrif á það. Að geta gagnrýnt það án þess að einhver bjóði manni samstundis að flytja úr landi. Innfæddir mega kvarta yfir öllu frá ríkisstjórninni niður í verð á smjöri. Ég myndi gjarnan vilja fá þann þátt íslenskrar menningar viðurkenndan hjá mér líka.

Ég kom hingað frá Bosníu. Sú saga hverfur ekki, og ég hef enga löngun til að láta eins og líf mitt hafi byrjað í komusalnum í Keflavík. Ég á minningar, tungumál og rætur annars staðar. Ég hef líka byggt líf mitt hér í þrjá áratugi. Annað gerir hitt ekki ósatt.

Ég þarf ekki að elska Bosníu minna til að þykja vænt um Ísland. Og ég þarf ekki að afmá uppruna minn til að tilheyra samfélaginu sem ég hef tekið þátt í að byggja.

Ég get alveg hlegið að þessu. En á bak við þessa umræðu er alvarleg spurning um börnin sem alast hér upp og heyra sífellt að þau séu ekki nógu íslensk. Hversu lengi ætlum við að biðja fólk um að vera hluti af „okkur“, en minna það svo á að það verði alltaf „þau“?

Ég er frá Bosníu og ég er líka Íslendingur. Það er engin mótsögn í því, þótt það virðist valda einhverjum töluverðum skipulagsvanda.

En sendið mér endilega námsefnið fyrir prófið. Ég mæti vel undirbúin.

Ég geri bara þá kröfu að þeir sem semja það taki það líka. Án aðstoðar frá mömmu. 

Annars góð.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: