Stjórnmál:
Í Reykjavíkurbréfi Moggans er meðal annars fjallað um Flokk fólksins. Á neikvæðan hátt. Þrátt fyrir, að einkum Kristrún forsætisráðherra, lofi Ingu Sæland formann flokksins, við hvert tækifæri. Í Reykjavíkurbréfi helgarinnar segir til dæmis:
„Þá má ekki gleyma því að stundum hafa verið uppi vangaveltur um það hve lengi Samfylking og Viðreisn geti búið við samstarfið við Flokk fólks, einkum þó við formann Flokks fólksins, sem er að vísu sami hluturinn. Samkvæmt könnunum hefur Samfylkingin svo sem ekki liðið ennþá fyrir þetta samstarf, en að því kann að koma. Augljóst er að formenn Samfylkingar og Viðreisnar hafa þurft að teygja sig of langt til að halda frið við þriðja formanninn og er ýmislegt sem landsmenn verða vitni að í því sambandi með nokkrum ólíkindum. Þar ræðir ekki aðeins um þau mál sem Viðreisn og Samfylking hafa mátt kyngja frá Flokki fólksins, heldur einnig undarlega framkomu í tengslum við þessi samskipti ásamt þeirri staðreynd að forsætisráðherra hefur jafnvel flækst inn í óásættanleg deilumál sem orðið hafa til vegna stjórnarhátta innan Flokks fólksins. Það er nokkuð sem enginn forystumaður í ríkisstjórn hefur áhuga á að gera þó að forsætisráðherra reyni að láta ekki á neinu bera.
En þau eru fleiri innanmeinin en þessi sem mest eru æpandi. Í frásögn Jóns Gnarrs af því hvers vegna hann hafi ákveðið að segja skilið við þingflokk Viðreisnar kom fram að hann hefði verið að hugsa þetta síðan í sumar og að það hefði meðal annars tengst þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst.“
Fyrirsögnin er sótt í Reykjavíkurbréfið, þar sem hún er millifyrirsögn.