Alþingi:
Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Norðvestri, sagði á Alþingi:
„Dómur Landsréttar frá 15. október sl. þar sem maður var sýknaður af nauðgun með vísan til samþykkis brotaþola fyrir harkalegu kynlífi hefur vakið óhug og reiði í samfélaginu. Héraðsdómur hafði dæmt manninn í fimm ára fangelsi og taldi sannað að konan hefði meðal annars hlotið rifbeinsbrot, heyrnartap, áverka á höfði, eymsli í kjálka, tognanir á hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind. Hún er enn óvinnufær þremur árum síðar. Ég endurtek: beinbrot, heyrnartap, áverkar á höfði, eymsli í kjálka, tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind og maðurinn var sýknaður með vísan til samþykkis.
Samþykki fyrir kynlífi er ekki samþykki fyrir ofbeldi. Landsréttur klofnaði en dómarar sem vildu sýkna viðurkenna í rökstuðningi sínum að tvennt skipti sköpum í þessu máli, annars vegar að þolendur nauðgana geti frosið af hræðslu og hins vegar að ofbeldi í kynlífi þurfi að samþykkja sérstaklega og með skýrum hætti.

Yfir 4.000 manns hafa sett nafn sitt á undirskriftalista þar sem krafist er að Alþingi og dómsmálaráðherra beiti sér fyrir óháðri úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundinna ofbeldismála, frá rannsókn til dómsmeðferðar. Undirskrifendur sætta sig ekki við að ábyrgðin sé færð yfir á þolendur. Þeir sem beita ofbeldi bera ábyrgð á gjörðum sínum. Þolendur eiga ekki að þurfa að réttlæta hvers vegna þeir sögðu ekki nei oftar eða börðust ekki meira á móti. Ég er þeim hjartanlega sammála. Krafist er fagmennsku við rannsókn, saksókn og dómsmeðferð. Úttektin taki til sönnunarmats, mats á læknisfræðilegum gögnum og frásögnum þolenda. Einnig verði skoðað mat á samþykki, mörkum þess, afturköllun og ásetningi. Við sem samfélag verðum að horfast í augu við þetta samfélagsmein sem hér er að gerjast. Ofbeldi gegn konum og börnum fer vaxandi. Hættulegasti staður kvenna er heimili þeirra. Nú er mál að linni.“