Dómsmál:
Maður, sem áður hefur verið dæmdur fyrir nauðgun brýtur á konu þannig að hún hlýtur talsverðar líkamlegan skaða ofan á allt hitt, er sýknaður í landsrétti (með litlu elli) af því þetta var bara „gróft kynlíf.“
„Konan hlaut samkvæmt ákæru meðal annars rifbeinsbrot, yfirborðsáverka á höfði, eymsli í kjálka, tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind, heyrnartap og rifbrot.“
Gróft kynlíf? Hér er ekkert sem hægt er að skilgreina með öðrum hætti en sem viðbjóðslegt OFBELDI! Allt sómakært fólk veit hvað er ofbeldi og hvað ekki. Það er eins gott að hæstiréttur standi í lappirnar þegar málið kemur þangað og sendi síðan dómara Íslands á öllum dómstigum í löngu tímabæra endurmenntun.
Grímur Atlason skrifaði fréttina sem er fengin af Facebooksíðu hans.
