Stjórnmál:
Þröstur Ólafsson skrifaði:
Umsvif og jarðakaup enska auðmannsins Ratcliffe á Norð-Austurlandi hafa vakið undrun og nokkurn óhugnað. Ein landmesta jörð landsins, Grímsstaðir á Fjöllum, er komin í hans víðu vasa. Á sínum tíma var komið í veg fyrir sölu þeirrar jarðar til lepps kínverskra yfirvalda. Hver skyldi vera ástæða þess að þetta ófrjóa og útbitna land sé svona eftirsóknarvert? Með hitnandi lofthjúpi og heitari jörð verða þessar víðáttur ómetanlega verðmætar. Hvernig stóð á því að erlendir auðmenn fengu óhindrað, opið skotleyfi á íslenska jörð?
Allt frá árinu 1976 giltu hér íslenskuð dönsk lög um sölu jarðnæðis. Þau voru mjög ströng með kvöðum um búsetu, hefðbundna landbúnaðarframleiðslu, stærð lands og ýmislegt fleira. Landbúnaðarmál voru ekki hluti EES samningsins. Það var hins vegar frjáls för fjármagns. Þessi heftandi lög um jarðakaup fengu engu síður að gilda áfram.
Bændasamtökin orðin
að áburðarkerru
fyrir opið markaðskerfi.
Þessi hamlandi jarðakaupalög giltu óbreyttáfram til ársins 2004. Þá nam þáverandi landbúnaðarráðherra Guðni Ágústsson þau úr gildi með nýjum lögum, sem galopnuðu jarðasölu til útlendinga jafnt sem íslenskra. Engar hömlur settar, naumast tilkynningaskylda, nema við þinglýsingu. Bara óheft frelsi.
Mikil gleði greip um sig hjá samtökum bænda sem spöruðu hvorki hrós né lof yfir að innleiða óheftar nýfrjálshyggjuhugsjónir til landakaupa. Í gleðivímu vor fræg orð úr íslenskum bókmennta umfjöllun notuð: „Loksins, loksins.“ Það vekur undrun hve ginkeyptir við Íslendingar erum fyrir einföldum óúthugsuðum lausnum. Skynsemin hulin þokuslæðingi uppi á heiðum.
Öðru vísi mér áður brá. Bændasamtökin orðin að áburðarkerru fyrir opið markaðskerfi. Samkeppni. Hún gilti að vísa bara til „hagsbóta“ fyrir bændur sem áttu landið. Á búvörumarkaði var allt áfram í greipum einkasölu og innflutningsbanns.
Nú þarf að hafa hraðar en styrkar hendur og finna leið sem leggur ákveðnar hömlur á sölu bújarða, með gömlu lögin sem fyrirmynd. Annars gætum við orðið landalaus þjóð í eigin landi. Loftlags váin mun gera íslenskan úthaga sí verðmætari. Nú þurfa stjórnvöld að hugsa sitt mál.