- Advertisement -

Arna Lára á Alþingi: „Aðra eins vitleysu hef ég ekki heyrt lengi, lengi“

ALÞINGI:

Arna Lára Jóbnsdóttir Samfylkingu:

„Ég vil byrja á að þakka háttvirtum þingmanni fyrir ræðuna sem var auðvitað bara lýsandi fyrir efnahagspólitík Sjálfstæðisflokksins og þá efnahagsstjórn sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið með hér síðustu árin. Það er ekkert fjármagnað. Það á bara að auka hallann og láta þetta reddast. Ég er bara svo gáttuð að hlusta á þessa ræðu, að fólk átti sig ekki á því að það er ábyrg fjármálastjórn, það er ábyrg efnahagsstjórn þegar maður finnur tekjur fyrir þeim útgjöldum sem maður ætlar að stofna til.

Þegar maður leggur fram frumvarp sem kveður á um það að tekjur ríkissjóðs af erfðafjárskatti fari niður um 14 milljarða þá á almenningur það skilið að vita hvaðan það er tekið.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Rósa Guðbjartsdóttir og Jón Pétur Zimsen.

Og það var náttúrlega alveg fáránlegt hér áðan þegar háttvirtur þingmaður Rósa Guðbjartsdóttir hélt því fram að við ættum bara að taka þetta af hlunnindum opinberra starfsmanna. Aðra eins vitleysu hef ég ekki heyrt lengi, lengi. En það var þarna einhver misskilningur, fannst mér, í ræðu hv. þm. Jóns Péturs Zimsens, af því að sá sem erfir — það er ekki vegna dugnaðar hans að hann erfir. Það er vegna dugnaðar þess sem hann erfir. Mér fannst eins og það væri þannig í ræðu hans að ef ég væri að erfa fé þá væri það af því ég væri svo dugleg. Það er alls ekki þannig. Og þegar ég tala hér um heppni þá er það heppni í hvaða fjölskyldu maður fæðist. Það er ekki út af því að ég hafi verið svo dugleg, að það sé sérstakt afrek mitt að fæðast inn í einhverja ákveðna fjölskyldu og þess vegna erfi ég fé. Þannig að ég vil biðja þingmanninn að hafa það í huga.

Enn og aftur: Er hann ekki sammála mér um það að almenningur á skilið að vita hvaðan þessir 14 milljarðar koma? Og ég hlusta ekki á eitthvað svona bull eins og að það eigi að taka þetta af hlunnindum opinberra starfsmanna af því að það er nú bara vitleysa. Háttvirtur þingmaður hlýtur að vera sammála mér um það.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: