Alþingi:
Kristján Þórður Snæbjarnarson Samfylkingu:
„Nýverið gaf Alþýðusamband Íslands út skýrslu um greiningu á launakröfum sem aðildarfélög sambandsins gerðu á hendur fyrirtækjum hér á landi árið 2025. Það er sláandi niðurstaða úr þessari greiningu sem nær til um 80% verkalýðsfélaga innan ASÍ og nær til landsins alls. Þau 15 félög sem greiningin nær til gerðu alls 1.209 launakröfur sem námu alls um 1.400 millj. kr., 1,4 milljarði kr. Þar af var meiri hlutinn vegna almennra launakrafna, eða um 729 millj. kr. Kröfur vegna gjaldþrota voru samtals 674 milljónir. Kjarasamningsbrot og launaþjófnaður eru viðvarandi vandamál á íslenskum vinnumarkaði og þetta verður að uppræta.
Eins og ég hef áður komið að í þessum ræðustól þá þurfum við sterkari ramma utan um þau tilvik þegar laun eru ranglega reiknuð og greidd. Þar skiptir auðvitað máli hvort slíkt sé gert með vísvitandi hætti eða fyrir hrein mistök og ber að gera greinarmun þar á. Þegar um mistök er að ræða eru þau mistök leiðrétt um leið en sjaldnast þegar brotið er vísvitandi á fólki. Í sömu greiningu er jafnframt farið yfir það mikla og góða starf sem vinnustaðaeftirlit verkalýðsfélaganna sinnir, en á síðasta ári ræddi eftirlitið við rúmlega 3.200 manns á vinnustöðum fólks og farið var í rúmlega 1.300 eftirlitsheimsóknir. Ég er þeirrar skoðunar að vinnustaðaeftirlitið ætti að hafa rýmri lagalegar heimildir til að beita sektum þegar fyrirtæki standa ekki rétt að málum. Með því að setja ákvæði um févíti í lög getum við dregið úr launaþjófnaði, því það að stela af fólki á ekki að líðast og að sjálfsögðu á það að kosta fyrirtækin. Upprætum brotastarfsemi á íslenskum vinnumarkaði og beitum févíti.“