Landsvirkjun:
Eðlilega var okkur brugðið þegar Hörður Arnarson ákvað að hætta sem forstjóri Landsvirkjunar. Undir hans stjórn hafði Landsvirkjun gjörbreyst. Við horfðu með aðdáun hvernig reksturinn breyttist ár frá ári.
Svo er skipt um stjórn í Landsvirkjun. Brynja Baldursdóttir er nýr stjórnarformaður þessa mikla fyrirtækis. Hörður hefur verið fámáll um ástæður þess að hann vill ganga frá borði. Hann sagði í Kastljósi í gær: „Mér fannst ég ekki hafa það traust sem þarf að vera til staðar.“
Er það svo, að eftir farsælt starf hjá flóknu fyrirtæki, þar sem rekstur hefur breyst til hins betra og ríkið hefur fengið ótalda milljarða í arðgreiðslum, stígur nýr stjórnarformaður á sviðið og telur sig, og eflaust öll stjórnin líka, að þau viti betur en hinn farsæli forstjóri.
Þetta er vont mál. Ekki að Hörður vilji hætta – heldur að nýliðar í stjórn fyrirtækisins telji sig þess umkominn að vita betur en Hörður Arnarson. Mér líst ekkert á þetta.
-sme