- Advertisement -

Hver er nú sannleikur Sigurgeirs Brynjars?

Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:

Mér þykir fróðlegt að fá að heyra skýringar Vinnslustöðvarinnar á málinu og eflaust á það sama við um Eyjamenn flesta.

„Í frétt Sjómannasambandsins kemur fram að Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum ætli ekki að veiða makríl í ár og gera í þess stað eitthvað annað við veiðiheimildir sem gefur eflaust meira í aðra hönd. Sjómannasambandið leiðréttir í leiðinni að það sé ekki Samherji sem er að fara að leigja umræddar veiðiheimildir, en fróðlegt væri að fá að heyra skýringar fyrirtækisins.

Það er grátbroslegt að Vinnslustöðin hefur um árabil staðið í lögsókn á hendur ríkisins vegna þess að við úthlutun á makrílkvóta með reglugerð í ráðherratíð Jóns Bjarnasonar á sínum tíma hafi ekki verið gætt að lagatæknilegum atriðum þó svo úthlutunin hafi sannarlega verið í samræmi við markmið laga um stjórn fiskveiða.

Hvað sem því líður þá voru fyrirtækinu dæmdar bætur á síðasta ári vegna fyrrgreindar reglugerðar en í ár þá sjá forsvarsmenn Vinnslustöðvarinnar ekki ástæðu til þess að veiða umræddar heimildir samkvæmt frétt Sjómannasambandsins.

Mér þykir fróðlegt að fá að heyra skýringar Vinnslustöðvarinnar á málinu og eflaust á það sama við um Eyjamenn flesta.

Þetta makrílmál hlýtur að kalla á heildarendurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu en ég gæti trúað því að venjulegum Íslendingum sem tóku þátt í að greiða bætur til Vinnslustöðvarinnar sé stórlega misboðið.“

Frétt Sjómannasambandsins er svona:

Nú líður að makrílvertíð. Kvótinn er minni núna en undanfarin ár. Fréttir hafa nú borist af því að Vinnslustöðin hafi leigt sinn makrílkvóta. Ástæðan er sögð vera sú að uppsjávarverksmiðja VSV verði ekki klár fyrr en í september.

Eftir sitja sjómenn á uppsjávarskipum VSV með sárt ennið og engar tekjur af makrílvertíð þetta árið. Ekki verður lagt mat á það hér hvað þessi nýjasta exelæfing gefur VSV í aðra hönd.

Sjómannasambandið vill minna á að verð á makríl uppúr sjó í Færeyjum og í Noregi var uppundir þrefalt hærra á síðasta ári en á Íslandi. Það væri gustuk að gera út á makríl og landa í Færeyjum eða Noregi ef útgerðina vantar aur í kassann.

Eða jafnvel að bjóða íslenskun vinnslum sem bíða nú eftir hráefni, að gera tilboð í farmana. Það eru svona æfingar sem m.a. gera fólk afhuga íslenska kvótakerfinu.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: