
Úlfar Hauksson* skrifar:
Í lokin þori ég að alhæfa að forystufólk í íslenskum sjárvarútvegi óttast ekki aðild að ESB út af sjávarútvegshagsmunum. Þau vita að hér eftir sem hingað til munu þau spjara sig vel á sínu sviði innan ESB.
„Fyrir rúmum 20 árum var opinber stefna LÍÚ/SFS sú að Ísland gæti ekki gengið í ESB að óbreyttri stefnu ESB í sjávarútvegsmálum. Sú stefna LÍÚ/SFS tók 180 gráðu beygju eftir fund í Árnagarði í Háskóla Íslands í tilefni af útgáfu bókar sem ég skrifaði og byggði á víðtækum rannsóknum og heitir „Gert út frá Brussel? Íslenskur sjávarútvegur og Evrópusambandið – Sjávarútvegsstefna ESB rannsökuð út frá hugsanlegri aðild Íslands að sambandinu“.
Í rannsókninni er varpað ljósi á augljósa sérstöðu Íslands hvað varðar sjávarútveg bæði landfræðilega og hagsmunalega. Varpað er ljósi á ýmsa þætti í hinni sameiginlegu sjávarútvegsstefnu sem gera það að verkum að íslenskum sjávarútvegi væri nokkuð vel borgið innan ESB. Strax daginn eftir fundinn breytti LÍÚ/SFS stefnu sinni um 180 gráður með kúvendingu í afstöðu sinni. Miðlun upplýsinga gerði það að verkum að LÍÚ/SFS snéri frá þeirri stefnu að Ísland gæti ekki gengið í ESB að óbreyttri stefnu ESB í þá að Ísland gæti ekki gengið í ESB vegna þess að ESB gæti breytt grunnþáttum sjávarútvegsstefnunnar!
Í dag er afstaða SFS sú að töluverðar líkur séu á því að ESB breyti stefnu sinni eftir inngöngu Íslands gagngert til að vinna gegn hagsmunum Íslands!
Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki…
Nú vil ég benda lesendum á að mun meiri líkur eru á því að utanaðkomandi umhverfisvá kollvarpi íslenskum sjávarútvegi en að ESB taki ákvarðanir þvert á grundvallarhagsmuni aðildarríkis. Við aðild að ESB opnast hins vegar tækifæri fyrir íslenskan sjávarútveg t.a.m. á sviði markaðsmála og vöruþróunar. Þar fyrir utan er það nú svo að íslenskir útvegsmenn eru svo til gengnir í ESB. Íslenskir útvegsmenn eru þegar virkir þátttakendur í sjávarútvegi innan ESB í víðum skilningi.
Íslendingar koma með beinu og óbeinu eignarhaldi og stjórnun að útgerð á annan tug togara innan ESB og vegnar vel í því umhverfi. Þessir togarar landa hluta af afla sínum ferskum í vinnslur hér á landi sem og frosnum afurðum til áframhaldnandi flutningis á markaði erlendis.
Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki reka öflug sölufyrirtæki í mörgum löndum ESB. Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki reka og eiga fiskvinnslur í löndum ESB bæði á sviði ferksfisk- og saltfiskvinnslu. Að lokum þá gera íslensk sjávarútvegsfyrirtæki upp í evrum og eru fyrir löngu búinn að taka upp evru á öllum sviðum hvað varðar rekstur, uppgjör og lántökur. Það eina sem eftir er í krónuhagkerfinu eru launagreiðslur starfsfólks á Íslandi.
Sem dæmi þá er það svo að þegar Brim – sem staðsett er út á Granda – kaupir veiðafæri af Hampiðjunni – sem staðsett er við Skarfagarð – fara reikningar á milli í evrum en ekki krónum!
Þegar litið er yfir sviðið er algerlega augljóst að Ísland mun leggja áherslu á sérlausnir í sjávarútvegi í aðildarviðræðum við ESB. Að sama skapi er augljóst að slík ákvæði verða sett í aðildarsamning ef af verður. Hvernig þessar sérlausnir verða nákvæmlega útfærðar kemur aðeins í ljós í aðildarviðræðum.
Það eru aðrir hagsmunir sem standa þar í vegi.
Og við Íslendingar verðum að vega og meta hagsmuni okkar út frá stöðu mála í dag en ekki eins og var fyrir 50 árum eða þaðan að lengra aftur í tímann. Einstakir sögulegir sigrar þjóðar marka ekki endalok sögunnar. Hún heldur áfram…
Í lokin þori ég að alhæfa að forystufólk í íslenskum sjárvarútvegi óttast ekki aðild að ESB út af sjávarútvegshagsmunum. Þau vita að hér eftir sem hingað til munu þau spjara sig vel á sínu sviði innan ESB. Það eru aðrir hagsmunir sem standa þar í vegi. Hagsmunir sem stangast á við hagsmuni almennings. Segjum JÁ þann 29. ágúst og göngum með stolti til aðildarviðræðna og fáum samning á borðið. Lifið heil…“
*Fyrir þau sem ekki vita þá er Úlfar stjórnmálafræðingur frá HÍ, vélstjóramenntaður sem og skipstjóri. Hann þekkir mjög vel til sjávarútvegs, enda stundað sjómennsku til margra ára.