„Útséð væri um frekari fjárfestingu í sjávarútvegi“
Orðið á götunni í DV:„Fyrir ári
voru margir með böggum hildar yfir því að íslenskur sjávarútvegur væri að falli
kominn og að leiðrétting ríkisstjórnarinnar á veiðigjöldum kynni að vera kornið
sem fyllti mælinn. Gunnþór Ingason, forstjóri Síldarvinnslunnar á Neskaupstað,
sem þá var nýtekinn við formennsku í Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, sagði
blákalt að ekkert annað væri nú í boði en að segja upp fólki og loka
vinnslueiningum. Útséð væri um frekari fjárfestingu í sjávarútvegi – hún myndi
stöðvast vegna ofurgjaldtöku af greininni.
Og viti menn, ekki leið á löngu þar til Binni í Vinnslustöðinni, Binni blanki eins og hann er oft kallaður, tilkynnti lokun fiskvinnslu og sölu á togara. Vinnsluna og togarann hafði hann keypt skömmu áður til að koma höndum yfir aflaheimildir og alltaf hafði blasað við að hann myndi losa sig við skipið og vinnsluna – Vinnslustöðin átti nefnilega fyrir bæði skip og vinnslu og vantaði ekkert nema þennan viðbótarkvóta – en auðvitað kenndi Binni veiðigjöldunum um.
Um svipað leyti og Binni sagði upp fólki og auglýsti vinnslu og skip til sölu tilkynnti Brim hins vegar um að það hefði fest kaup á Lýsi hf. fyrir hátt í 30 milljarða. Orðið á götunni er að mörgum hafi þá verið mjög létt, enda ljóst að fjárfesting í sjávarútvegi væri þá ekki alveg dauð og grafin. Eftir áreiðanleikakönnun lækkaði kaupverðið reyndar í 20 milljarða, en það er samt alveg slatti.“