- Advertisement -

Er stórútgerðin að kæra sjálfa sig?

Sjávarútvegur:

Magnús Guðbergsson skrifar:

Það vekur furðu að stórútgerð skuli leita til umboðsmanns Alþingis vegna tímabundinnar viðbótarúthlutunar til strandveiða og bera fyrir sig jafnræði, á sama tíma og almenna aflamarkskerfið nýtur sjálft verulegs lögbundins svigrúms.

Er stórútgerð að kæra sjálfa sig fyrir svigrúmi sem er til staðar en er raunverulega að skekkja ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um tugi þúsunda tonna ef allt svigrúm er nýtt. Það er brot af því svigrúmi sem strandveiðar óska eftir á jafnræðisreglu með sömu auðlind. Sem stórútgerð hefur kært til umboðsmanns Alþingis.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Samkvæmt lögum er heimilt, að uppfylltum skilyrðum, að flytja allt að 15% aflaheimilda milli fiskveiðiára og veiða allt að 5% umfram aflamark með frádrætti á næsta ári. Strandveiðimenn njóta ekki sambærilegs sveigjanleika.

Er þá ekki mótsagnakennt að mótmæla tímabundnu svigrúmi annarra á grundvelli jafnræðis, þegar eigin veiðikerfi nýtur sjálft slíkra heimilda? Á mannamáli mætti kalla þetta að pissa í skóinn sinn sjálfur.

Ábyrgð stjórnvalda

Öll veiðikerfin byggja á úthlutun stjórnvalda með hliðsjón af ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Stjórnvöld settu sjálf fram markmið um 48 strandveiðidaga með 774 kg dagshámarki. Það eru stjórnvöld, ekki strandveiðimenn, sem ákveða hversu miklum aflaheimildum er ráðstafað til að ná þessu markmiði.

Viðbótarúthlutunin leiddi ekki til þess að MSC-vottun félli úr gildi. Ekki hefur heldur verið sýnt fram á markaðsbrest eða sjálfstætt mælanlegt tjón á fiskistofnum. Á hinn bóginn eru rök fyrir jákvæðum áhrifum á atvinnu og byggðastöðugleika.

Handfæraveiðar með takmörkuðum dagafla hafa jafnframt önnur áhrif á hafsbotn og lífríki en botnsnertandi veiðarfæri. Slíkur munur á að koma til skoðunar þegar stjórnvöld meta sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar.

Hvað er verið að verja?

Spyrja má hvort andstaðan við opnara strandveiðikerfi snúist eingöngu um fiskistofna og jafnræði eða einnig um fjárhagslega hagsmuni kvótahafa.

Aukið aðgengi smærri útgerða að aflaheimildum gæti dregið úr eftirspurn eftir leigukvóta, haft áhrif á leiguverð og jafnvel fjárhagslegt verðmat útgerðarfyrirtækja. Ekki hefur verið sýnt fram á að slík sjónarmið ráði kvörtuninni, en hagsmunatengslin verðskulda umræðu.

Hagsmunagæsla útgerðarfyrirtækja er skiljanleg. Hún má hins vegar ekki koma í stað málefnalegs mats stjórnvalda á jafnræði, umhverfisáhrifum og byggðastöðugleika.

Jafnræði getur ekki aðeins gilt þegar það þjónar þeim sem þegar ráða yfir mestum aflaheimildum.

Auðlindin er sameign íslensku þjóðarinnar.

48 dagar. 774 kg. Jafnræði fyrir alla þjóðina.

Það vekur furðu að stórútgerð skuli leita til umboðsmanns Alþingis vegna tímabundinnar viðbótarúthlutunar til strandveiða og bera fyrir sig jafnræði, á sama tíma og almenna aflamarkskerfið nýtur sjálft verulegs lögbundins svigrúms.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: