Þar má nefna milliverlagningu á sjávarafurðum, vigtarsvindl, ísprósentusvindl, útgerðir yfir kvótaþaki, árangursleysi Hafrannsóknarstofnunnar, skort á öflugu eftirliti,samþjöppun auðs og valds, strandveiðar og svo margt, margt fleira.
Umræðan: Vigfús Ásbjörnsson 4. varaþingmaður Flokks fólksins í Suðurkjördæmi, skrifar:
„Það heyrist lítið sem ekkert í verkstjóra ríkistjórnarinnar Kristrúnu Frostadóttir þegar mál sjávarútvegsins ber á góma frekar en Hönnu Katrínu Friðriksson sem ber titilinn sjávarútvegsráðherra í ríkistjórn með Kristrúnu Frostadóttir sem verkstjóra. Í raun heyrist nákvæmlega ekki neitt í Kristrúnu svona eins og hún voni að þjóðin gleymi vandamálinu og að henni komi ekki mál sjávarútvegsins við né hvað ráðherrar undir hennar verkstjórn eru að gera eða ekki að gera. Kristrún er í raun farin að minna æ meira á forsætisráðherra fyrri ríkistjórna.
Er Kristrún kannski bara orðin svona þreytt á þessu öllu saman? Þetta eru gríðarlega stór og alvarleg mál sem skipta samfélagið gríðarlega miklu máli og meira máli en margt annað. Þar má nefna milliverlagningu á sjávarafurðum, vigtarsvindl, ísprósentusvindl, útgerðir yfir kvótaþaki, árangursleysi Hafrannsóknarstofnunnar, skort á öflugu eftirliti,samþjöppun auðs og valds, strandveiðar og svo margt, margt fleira.
Hanna Katrín Friðriksson er ekki að gera neitt…
Hinsvegar hefur Dagur B. Eggertsson ekki hikað við að taka þessi mál upp óhræddur og vígreifur í baráttu sinni fyrir almannahag og betra samfélagi ásamt þingmönnum Flokk fólksins; Sigurjóni Þórðarsyni og Lilju Rafney Magnúsdóttir.
Það liggur alveg fyrir að Hanna Katrín Friðriksson er ekki að gera neitt sem sjávarútvegráðherra í þessum málum og virðist hún því algerlega vera undir hælnum á einhverju öðru en almannahag og er hún því verri en enginn, og enginn skilur af hverju hún er yfir höfuð sjávarútvegsráðherra. Hún er meira að segja að reyna að koma á laggirnar kvótakerfi í lagareldi að fyrirmynd þess kvótakerfis sem örfáar fjölskyldur eiga í sjávarútvegi.
Kristrún virðist bara samþykja aðgerðarleysi Hönnu Katrínar í einu og öllu og kannski er hún bara á sömu línu og hún. Kannski ætti Samfylkingin að skipta Kristrúnu út fyrir Dag B. Eggertsson. Allavega virðist það vera Dagur en ekki Kristrún innan Samfylkingarinnar sem dregur vagn þessara stóru mála fyrir almenning í landinu ásamt þingmönnum Flokks fólksins og virðist Dagur óhræddur og vígreifur ekki hika við að taka slaginn við sérhagsmunaelítu þessa lands. Kannski þarf Kristrún bara smá sumarfrí til að safna kröftum, hver veit hvað veldur þessu aðgerðarleysi og eða áhugaleysi. Allavega sakna ég þess eldmóðar sem var í Kristrúnu í upphafi. Verkstjóri ríkistjórnar þarf að sjá til þess að ráðherrar eins og t.d. Hanna Katrín vinni vinnuna sína fyrir fólkið í landinu og enga aðra.
Kristrún girtu þig í brók. Það eiga að vera auðlindir þessa lands sem eiga að standa undir kostnaði við uppbyggingu velferðarsamfélagsins á Íslandi. Ekki skattahækkanir á almenning í landinu. Ég ætla að vitna í grein Sigurðar Sigurðssonar sem birtist á Vísi 17. júni síðastliðinn . „Auðurinn streymir upp, lífsbjörgin streymir niður, og á milli sitja pólitíkusar sem mæta í sjónvarpssal og dásama hagvöxtinn.”