- Advertisement -

Nú reynir á ríkisstjórnina

Magnús Guðbergsson, félagi í Strandveiðifélagi Íslands, skrifaði eftirfarandi grein:

„Ríkisstjórnin hefur nánast staðið við eitt af stærstu kosningaloforðum sínum um strandveiðar með því að tryggja 48 veiðidaga. Það er mikilvægt skref sem ber að fagna. Nú reynir hins vegar á hvort stjórnvöld ætli að ljúka verkinu eða láta staðar numið.

Með því að tryggja aflaheimildir út ágúst væri hægt að ljúka strandveiðitímabilinu á ábyrgðan hátt og skapa svigrúm til að fara í yfirvegaða endurskoðun á framtíðarfyrirkomulagi strandveiða í haust. Slík umræða ætti að byggjast á reynslu, gögnum og langtímahagsmunum þjóðarinnar, en ekki á getgátum, tímapressu eða óvissu.

Strandveiðar snúast ekki aðeins um afla. Þær snúast um atvinnu, byggðafestu, nýliðun í sjávarútvegi og rétt almennings til að njóta arðs af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar. Þess vegna skiptir máli að skapa stöðugt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ef stjórnvöld telja að strandveiðar eigi framtíð fyrir sér er eðlilegt að tryggja nægar aflaheimildir til loka tímabilsins út ágúst, og nýta haustið til að móta varanlegt og sjálfbært kerfi. Þannig má skapa meiri sátt, auka fyrirsjáanleika og styrkja greinina til framtíðar.

Nú er tækifærið til staðar. Ríkisstjórnin getur annaðhvort lokið því verkefni sem hún hóf eða látið það sitja eftir hálfklárað. Sú ákvörðun mun segja meira en mörg orð um raunverulegan vilja hennar til að standa við stefnu sína í strandveiðimálum.

Flokkur fólksins fer þar í fararbroddi með því að standa við gefin loforð, en hann er ekki einn að þeirri ákvörðun. Um málið þurfa einnig að nást samningar við hina flokkana tvo í ríkisstjórninni, Samfylkinguna og Viðreisn.

Eðlilegt væri að markmiðið væri að standa við gefin loforð um 48 daga strandveiðar og tryggja þannig það magn sem atvinnugreinin þarf til að geta verið sjálfbær.

Með þau gögn inn í umræðuna í haust á Alþingi væri hægt að fjalla um strandveiðar og það heildarmagn sem kerfið þarf af ábyrgð en ekki getgátum sem uppi voru frá stjórnarandstöðu síðasta árs.

Nú hafa strandveiðar sannað sig og sýnt að þær eru raunverulegur kostur sem atvinnugrein ásamt öðrum í landinu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: