Stjórnmál:
Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:
Hjálmar Bogi Hafliðason hefur lagt ýmislegt gott til í menntamálum í gegnum tíðina m.a. að takmarka snjallsímaeign barna og gott ef ekki símabann í skólum sem varaþingmaður Framsóknarflokksins. Mig minnir að hann hafi lagt til samræmt og skýrara námsmat og bætta lestrakennslu en án nákvæmrar forskriftar eða allsherjarlausnar.
Það verður ekki annað sagt en menntamálaráðherra sé einmitt búinn að hrinda ýmsu af því sem frumkvöðullinn hefur lagt til eða sé að vinna að því m.a. símabanni, takmarka snjallsímanotkun barna á samfélagsmiðlum.

Fyrirfram hefði mátt ætla að skólafrömuðurinn myndi fagna framgangi málanna en svo er ekki. Nei hann skrifar hverja beiskjublandna greinina á fætur annarri þar sem alger aukaatriði í útfærslu mála eru gerð að aðalatriði m.a. geymslu á símum, ábyrg á þjófnaði og fleira í þeim dúr.
Nú stendur yfir vinna við að útfæra nýtt námsmat og sumir skólar hafa þegar tekið upp talnakerfið og lagt af bókstafi.
Í nýrri grein gagnrýnir skólastjórnandinn ráðherra persónulega bæði fyrir meint gerræði og síðan hitt að ráðuneytið skuli vera enn að vinna að breytingum á námskrá sem lítur að bókstafakerfinu.
Þessi framganga Hjálmars bendir jafnvel til þess að það sé ekki mikill vilji til endurbóta á menntakerfinu eftir allt saman. Staðan er alvarleg þar sem hátt í helmingur drengja hafa ekki grunnhæfni í lesskilning eftir 10 ára nám í grunnskóla.
Framsóknarflokkurinn ber þunga ábyrgð á stöðunni sem Inga Sæland vinnur hörðum höndum að því að bæta. Ráðherrar Framsóknar m.a. núverandi formaður réðu ferðinni í menntamálaráðuneytinu frá árinu 2017 til 2024, þegar verulega fór að síga á ógæfu hliðina.