- Advertisement -

Leyndinni aflétt í endurgerði bók um Thorsaranna

Bók:

Guðmundur Magnússon, sagnfræðingur og blaðamaður, hefur bætt köflum í bók sína um Thorsaranna, og tekið annað efni út. Hann skýrir þetta í viðtali við Moggann. Einn kafli þess er birtur hér.

„Þegar bókin um Thorsarana kom fyrst út fyrir 21 ári vakti hún mikla athygli; bæði efnið en ekki síður þegar það spurðist út að öllu fyrsta upplagi bókarinnar hefði verið fargað vegna frásagnar um viðkvæmt mál í fjölskyldu eiganda forlagsins, Björgólfs heitins Guðmundssonar. Kona hans, Þóra Hallgrímsdóttir, dótturdóttir Thors Jensen, hafði áður verið gift George Lincoln Rockwell, leiðtoga nýnasista í Bandaríkjunum.

„Mér var sagt að þetta hjónaband hefði verið alveg óuppgert innan fjölskyldunnar og frásögnin því vakið erfiðar endurminningar Þóru. Ég hafði beðið útgefandann að skoða sérstaklega þessar síður, en það fórst því miður fyrir. Eftir á að hyggja hefði ég auðvitað átt að ganga ríkar eftir þessu. Daginn sem prentun lauk og upplagið var tilbúið til dreifingar varð því mikið uppnám á heimili Björgólfs og Þóru vegna þessa. Í fyrstu var óljóst hvort bókin fengi yfirhöfuð að koma fyrir sjónir almennings,“ segir Guðmundur og heldur áfram:

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Að samkomulagi varð að prenta bókina að nýju eftir að búið var að taka þessar síður út. Í staðinn var bætt inn nokkrum síðum sem tengdu þáverandi umsvif Björgólfs heitins og sonar hans Björgólfs Thors í íslensku viðskiptalífi við sögu Thors Jensen. Þetta átti að fara algerlega leynt, en þjóð veit þá þrír vita og það tókst ekki. Fjölmiðlar komust á snoðir um þetta og sögðu frá. En nú er hins vegar langt um liðið og þau sjónarmið sem voru uppi þá um hvað segja skyldi – og ekki – eiga ekki lengur við. Því þótti mér eðlilegt að þessar síður sem voru teknar út yrðu í endurútgáfunni. Viðbæturnar sem settar voru inn hafa jafnframt verið felldar á brott enda voru þær upphaflega ekki hluti af verkinu.““


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: