- Advertisement -

„Mér blöskraði samt þessi frétt“

Facebook: Eiríkur Rögnvaldsson skrifaði:

„Maður er svosem orðinn ýmsu vanur í framsetningu frétta á mbl.is en mér blöskraði samt þessi frétt. Þarna er risastór mynd af Ingu Sæland yfir fyrirsögninni „175 milljónir í starfslokasamninga“ – augljóslega til þess ætlað að kalla fram hneykslun yfir óráðsíu Ingu og ríkisstjórnarinnar. En þegar fréttin er lesin kemur í ljós að í fyrsta lagi er þarna um að ræða átta ára tímabil þar sem Sjálfstæðisflokkurinn var í stjórn sjö fyrstu árin, og kostnaðurinn á því ári sem Inga hefur setið í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu er bara rúmar 17 milljónir eða tíundi hluti af heildinni. Í öðru lagi er ekkert af þessu í ráðuneytinu sjálfu heldur allt í undirstofnunum þess og litlar líkur á að ráðherra, hver sem það hefur verið, hafi komið að samningunum. Það er ekki hægt að kalla þetta beinlínis fréttafölsun en óneitanlega er framsetningin til þess fallin að blekkja lesendur.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: