- Advertisement -

Bubbi kveður Sýn

Bubbi Morthens skrifaði:

„Hvernig verðleggur maður traust á sjónvarpsfréttum? Eru fréttir arðbærar? Eru fréttir einskonar hlutabréf? Sumir kannski halda það, en svo er ekki. Þegar menn eru komnir þangað að halda það sé hægt að græða á fréttum þá eru þeir með vonda frétt á borði. Eini arðurinn sem Sýn sér ekki er traustið.

Fréttastofa Sýnar var afbragð og naut traust þjóðarinnar í áratugi með frábæru starfsfólki. Fréttir og fréttastofur ættu aldrei að vera verðlagðar.

Vegna þess það er ekki hægt. Traust er áunnið það kemur ekkert í staðinn fyrir sjónvarpsfréttir Sýnar sama hvað sagt er. Ég var áskrifandi vegna þeirra og nú hverfur sú áskrift með hinu sökkvandi flaggskipi Sýnar, fréttastofu sjónvarpsins. Takk fyrir mig og samfylgdina frá árinu 1986.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Skrif Bubba er fengin af Facebook.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: