Guðmundur Andri Thorsson skrifaði:
„Nei, auðvitað þarf ekkert að leggja niður neitt hjá RÚV og hvað þá selja – hverjum? Útgerðaraðlinum? Ratcliffe? Lífeyrissjóðunum? Hættið þessu bulli, við þurfum þjóðarútvarpið okkar og ekki orð um það meir. En tvennt mætti laga: Mér finnst of erfitt að finna bestu þættina sem er að finna á RÚV um þessar mundir og er þáttaröðin Aldrei las ég Laxness; hef verið að hlusta á nýjasta þáttinn um Heimsljós, sem er frábær– ef ekki sá besti til þessa – en lenti enn einu sinni í þessu „Aldrei finn ég Laxness“ veseni á heimasíðu RÚV þar sem eru meira og minna sömu þættirnir auglýstir. Hitt er ekki síður brýnt: að setja á streymi þættina hans Karls Th Birgissonar, Orð skulu standa, sem voru með því allra besta sem þarna var í boði, og eiginlega óskiljanlegt að hætt hafi verið með þá. Minningu hans má sýna þann sóma að gera þættina aðgengilega, og svo voru þeir svo skemmtilegir og fræðandi.“
Sigurgeir Sigmundsson gítaristi brást við og skrifaði:
„Löngu tímabært að taka RUV af auglýsingamarkaði en viðurkenna um leið mikilvægi RUV sem óháðrar frétta- og menningarstofnunar, auka framlögin í samræmi við það. RUV á að veita öllum straumum og stefnum í pólitík aðhald og er í raun mikilvægasta verkfærið sem við höfum í höndum.
Það er síðan pólitísk ákvörðun hvernig við verndum innlendan auglýsingamarkað. Hvað er eðlileg samkeppni og hvað ekki?
En áfram RUV og megi hið ágæta Útvarpsráð rífast sem mest. Það er merki um heilbrigði lýðræðisins.“