- Advertisement -

Fjölmiðlar á Íslandi falla hver af öðrum

Gunnar Smári Egilsson:

Samstöðin er eini sprotinn meðal frjálsra miðla sem hefur vaxið að undanförnu, þar fer mest nýsköpunin í dagskrárgerð og þar er fer fram mest af virkri og opinni samfélagsumræðu dagsins í dag.

Fjölmiðlar á Íslandi er að falla hver af öðrum. DV hætti sem prentmiðill, Fréttatíminn fór og Fréttablaðið, Heimildin orðin að mánaðarblaði, og nú skreppur fréttastofa Stöðvar 2 saman. Enginn fjölmiðill lifir af markaðstekjum frá auglýsendum nema þeir miðlar sem fyrirtækjaeigendur haldi á lífi til að reka fyrir sig áróður; Morgunblaðið, Viðskiptablaðið og hægri hlaðvörp (sem verðlauna Þorstein Má í Samherja fyrir stórkostlegt framlag til samfélagsins).

Í þessu umhverfi er Samstöðin eina fyrirbrigðið sem hefur orðið til og vaxið. Samstöðin sendir út allan sólarhringinn, alla daga vikunnar, þar af 24 klst á viku af nýju efni af samfélagslegri umræðu sem er miklum mun meira en Bylgjan gerir eða Rás 2. Og Samstöðin sendir út kvöldfréttatíma á virkum dögum, sem er nú það sama og Stöð 2 gerir (nema hvað fréttatími Samstöðvarinnar er helmingi lengri með þrisvar sinnum fleiri fréttum).

Samstöðin reynir ekki að lifa á auglýsingamarkaði þar sem auglýsendur nota afl sitt til að hafa áhrif á miðlanna, beint og í gegnum ótta eigenda við að missa tekjur. Samstöðin sækir fyrst og fremst afl til áskrifenda og starfsfólks. Starfsfólks sem vinnur mikið fyrir lág laun, fólk leggur líka til stöðvarinnar með sjálfboðavinnu, fólk sem leggur margt á sig til að viðhalda hér frjálsri fjölmiðlun og opinni umræðu. Og áskrifendur sem leggja Samstöðinni lið með mánaðarlegu framlagi (grunnáskriftin er 2.750 kr.) svo hægt sé að halda úti dagskrá og mögulega efla hana þegar fleiri áskrifendur bætast í hópinn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ef þú vilt ekki að öll fjölmiðlun á Íslandi verði undir stjórn auðugasta fólksins á Íslandi ættir þú að gerast áskrifandi að Samstöðinni. Strax í dag. Samstöðin er eini sprotinn meðal frjálsra miðla sem hefur vaxið að undanförnu, þar fer mest nýsköpunin í dagskrárgerð og þar er fer fram mest af virkri og opinni samfélagsumræðu dagsins í dag.

Þú getur skráð þig fyrir áskrift hér: https://askrift.samstodin.is/


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: