
Stjórnmál:
Ágúst Bjarni Garðarsson skrifaði:
Þessi pistill er að mínu mati táknmynd pólitísks hroka. Hroki er sjaldan góður förunautur til lengri tíma, sama hvar í flokki fólk stendur.
…voru hins vegar
gerð fjölmörg
mistök…
Ég sat á þingi á kjörtímabilinu sem hér er vísað til og tók þátt í kosningabaráttunni fyrir kosningarnar 2021. Ég fullyrði að þar var rekin alvöru pólitík sem fólk tengdi við og skipti máli: málefni barna, húsnæðismál og fleira. Að afgreiða það allt sem „partístemningu án innihalds“ er að mínu mati ómaklegt.
Á kjörtímabilinu voru hins vegar gerð fjölmörg mistök sem flokkurinn þarf að horfast í augu við og draga lærdóm af. Þau áttu sinn þátt í því að flokkurinn fékk mikinn skell í kosningunum 2024, tapaði fylgi og missti fjölda þingmanna.
Framsókn er þó ekki eini flokkurinn sem hefur lent í slíku. Flokkur höfundar ætti sjálfur að þekkja hversu hratt fylgi getur fjarað undan stjórnmálaflokki. Þar má meðal annars minnast þess hve miklu vinsældir vinar míns, Loga Einarssonar, fyrir norðan skiptu þegar á móti blés. Þær komu í veg fyrir að flokkurinn félli af þingi árið 2016 með 5,7% atkvæða.
Það er stundum ágætt að hafa í huga orð lagsins „Kóngur einn dag“: „Kóngur einn dag, þann næsta ertu í bólakafi.“ Pólitíkin er kvikur heimur og fylgi getur horfið hratt þegar fólk missir trú á valdhöfum. Það getur hent alla flokka. Ef ég hef eitthvað lært af veru minni í stjórnmálum, þá er það að auðmýkt er betra veganesti en hroki.