Samgöngur:
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, skrifaði:
„Þegar flug t.d. frá Ísafirði til Reykjavíkur getur verið 49 þúsund aðra leið þá er eitthvað mikið að og 7000 kr. niðurgreiðsla fyrir landsbyggðarfólk dropi í hafið ! Loftbrúin var góð ákvörðun á sínum tíma með 40% afslætti fyrir 6 ferðir á 12 mánuða tímabili fyrir íbúa landsbyggðanna en nú leikur Icelandair lausum hala í verðlagningu í engri samkeppni innanlands en bíður t.d. flug til Spánar á 20 til 30 þúsund!
Þetta er ekki boðlegt og verkefni okkar þingmanna og ráðherra að taka til alvarlegrar skoðunar. Innanlandsflug er mikið öryggismál og almenningssamgöngur fyrir fjölda íbúa landsbyggðanna og á ekki að vera lúxus fyrir íbúa og fjölskyldufólk sem þarf að sækja fjölmarga þjónustu á höfuðborgarsvæðið. Ef áfram heldur sem horfir mun ferðum fækka ennfrekar vegna óhóflegrar verðlagningar og flugið ekki valkostur fyrir efnaminna fólk heldur fyrst og fremst fyrir þá efnameiri og þá sem fá flugið endurgreitt vegna vinnu sinnar.“