- Advertisement -

Of viðkvæmur fyrir hádegisverði

Landsvirkjun:

Jóhann Þorvarðarson skrifaði:

Hörður Arnarson kaus sjálfur að segja af sér sem forstjóri Landsvirkjunar eftir farsælan feril. Um það er ekki annað að segja en: takk fyrir góð störf á frábærum launum. Flestir bjuggust við að þar með lyki málinu.

Fyrst var Hörður þögull sem gröfin eftir afsögn sína og keppst var um að mæra störf hans fyrir Landsvirkjun. Í viðtali við Kastljós sagðist hann vera sáttur við að ganga frá borði og sagði í léttum tón að hann væri ef til vill orðinn eins og gamall hundur í stóli forstjóra. Kannski orðinn full ráðríkur.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hörður hefur lýst
því svo að slík
samskipti hafi
grafið undan…

Kastljóssviðtalið vakti þó ekki mikla athygli og síðar hafa komið fram ítarlegri skýringar á afsögninni. Þar hefur komið fram að Hörður taldi traust milli sín, stjórnar fyrirtækisins og fjármálaráðherra ekki lengur vera það sama og áður.

Kjarni málsins virðist meðal annars snúa að óformlegum hádegisverðum stjórnarmanna Landsvirkjunar. Hörður hefur lýst því svo að slík samskipti hafi grafið undan því trausti sem ætti að ríkja milli forstjóra og stjórnar. Erfitt er þó að sjá að fundir af þessu tagi feli í sér vandamál. Stjórnarmenn verða ekki sviptir sjálfstæði sínu þótt þeir hittist yfir kaffibolla eða hádegisverði.

Þvert á móti hefði mátt líta á slíkt sem styrkleikamerki. Stjórn sem vill skilja starfsemi fyrirtækis til hlítar mun óhjákvæmilega ræða saman utan formlegra stjórnarfunda, enda eru engar ákvarðanir teknar við slíkar aðstæður. Þar er verið að skiptast á sjónarmiðum, efla gagnkvæman skilning og byggja upp samstarf.

Að stjórnarmenn, sem ekki hafa starfað jafn lengi og forstjórinn að málefnum fyrirtækisins, leitist við að setja sig betur inn í starfsemina er bæði eðlilegt og æskilegt. Þetta þekkist víða þar sem fólk úr ólíkum áttum vinnur saman að sameiginlegum markmiðum.

Í íþróttum, menningu og fyrirtækjarekstri er algengt að hópar hittist utan hins hefðbundna starfsumhverfis. Markmiðið er einfaldlega að efla samvinnu og liðsanda. Iðkendur koma saman án þjálfara, þjálfarar ræða sín á milli án iðkenda og stjórnir funda án framkvæmdastjóra. Engum dettur í hug að slíkt grafi sjálfkrafa undan trausti. Þvert á móti er það oft forsenda þess að samstarfið gangi vel.

Fólk sem hefur trú á eigin getu og framlagi lætur það sjaldnast raska sér þótt aðrir hittist til skrafs og ráðagerða án þess að það sé alltaf viðstatt. Í stórum og flóknum samtökum geta aldrei allir verið með í öllum samtölum.

Það breytir þó ekki
því að Hörður
Arnarson
hefur reynst
farsæll stjórnandi…

Þegar hlustað er á skýringar Harðar, fjármálaráðherra og stjórnarformanns Landsvirkjunar er erfitt að sjá að traustsbresturinn hafi verið til staðar og uppsögn því óþörf á þessari forsendu. Fremur virðist um misskilning að ræða eða óþarfa viðkvæmni hjá reyndum forstjóra.

Þá er einnig ástæða til að staldra við þá hugmynd að einn einstaklingur sé ómissandi. Kirkjugarðarnir eru sagðir fullir af ómissandi fólki og sagan styður þá fullyrðingu ágætlega.

Góður árangur Landsvirkjunar á undanförnum árum er ekki verk eins manns. Hann er afrakstur fjölmargra stjórnenda, starfsfólks, stjórna fyrirtækisins, ríkisstjórna og þeirra samfélagslegu ákvarðana sem mótað hafa íslenskan orkumarkað á löngum tíma.

Ekki má heldur gleyma því að staða Landsvirkjunar í dag byggist að hluta á alþjóðlegri þróun sem fyrirtækið sjálft ræður litlu um. Aukin áhersla á kolefnisminnkun og hreina orku hefur aukið verðmæti þeirrar auðlindar sem Ísland býr yfir. Þar nýtur Landsvirkjun góðs af aðstæðum sem mótast fyrst og fremst af þróun heimsins en ekki einstökum stjórnendum. Loftlagsmál og hamfarahlýnun er stór áhrifavaldur í velgegni Landsvirkjunar.

Það breytir þó ekki því að Hörður Arnarson hefur reynst farsæll stjórnandi og skilað fyrirtækinu vel af sér. Fyrir það á hann þakkir skildar. En við skulum jafnframt muna að maður kemur alltaf í manns stað.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: