- Advertisement -

Pólitískar ofsóknir Vinstri grænna?

Sigurjón Þórðarson:

Ef málið er eins og það lítur út fyrir að vera einhver pólitísk veiðiferð, þá finnst mér sárast að Fiskistofa sé að flækja tveimur harðduglegum kunningjum inn í þessa moðsuðu sína.

Í vikunni fékk ég stórundarlegt bréf í ábyrgðarpósti frá Fiskistofu, þar sem tilkynnt var um að ég hefði verið staðinn að lögbroti á Hofsósi, í júní árið 2022 og varðaði brotið, atvinnuþvingunum og allt að sex ára fangelsisvist!

Eftir því sem ég las málsatvik og málatilbúnað Fiskistofu nánar, þá taldi ég málið sannast sagna vera einhver fáránleg mistök enda eru meginreglur stjórnsýslulaga þverbrotnar í málsmeðferð stofnunarinnar. Upp í hugann skaut einnig þeirri hugmynd að málið væri mögulega angi af andúð og pólitískum ofsóknum.

Til þess að taka af allan vafa skrifaði ég fiskistofustjóra Ögmundi Hauki Knútssyni bréf og óskaði eftir að málið yrði endurskoðað og kærði jafnframt málsmeðferðina til Benedikts Árnasonar ráðuneytisstjóra matvælaráðuneytisins. Það hafði ekki annað upp á sig en að Fiskistofa ítrekaði delluna þannig að eftir því sem málinu vindur áfram get ég ekki séð annað en að það sé kominn pólitískur grænmyglulegur óþefur af málinu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Meint lögbrot var að mati Fiskistofu er að hafa landað nokkur hundruð kílóum af fiski á Hofsósi, án þess að ganga úr skugga um að sá sem tók við aflanum, hefði löggilt vigtarpróf!

Meint lögbrot var að mati Fiskistofu er að hafa landað nokkur hundruð kílóum af fiski á Hofsósi, án þess að ganga úr skugga um að sá sem tók við aflanum, hefði löggilt vigtarpróf! Það var enginn grunur um framhjálöndun eða nokkurt svindl af neinu tagi – fyrir þetta veifar Fiskistofa hótun um 6 ára fangelsisvist. Málið er að ég hef landað afla í nokkrum höfnum landsins, en aldrei dottið í hug að spyrja þann sem tekur við aflanum hvort hann hafi próf á vigtina eða á lyftara.

Það er ljóst að málið undirstrikar athugasemdir mínar á opinberum vettvangi við störf Fiskistofu þ.e. að stofnunin beiti sér ekki gegn skýrum lögbrotum stærri aðila í sjávarútvegi m.a. hvað varðar að virða skýr ákvæði laga um kvótaþakið og margfaldar vigtarreglur þar sem augljóslega er verið að hygla þeim stærri, á sama tíma og þunga eftirlitsins er beint að því smáa.

Málið lítur verulega illa út fyrir ásýnd stjórnsýslunnar í landinu þ.e. að það vakni upp rökstuddur grunur um, að þeir sem gagnrýna stjórnvöld opinberlega séu lögsóttir með langsóttum lagtæknilegri rökleysu. Í þessu máli hefði verið nærtækast að kalla eftir ábyrgð þess sem ber raunverulega ábyrgð á rekstri Skagafjaðrarhafna þ.e. Sveitarfélagsins Skagafjarðar, ef Fiskistofa taldi málið brýnt, en ekki þeirra sem áttu leið um höfnina.

Ef málið er eins og það lítur út fyrir að vera einhver pólitísk veiðiferð, þá finnst mér sárast að Fiskistofa sé að flækja tveimur harðduglegum kunningjum inn í þessa moðsuðu sína.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: