- Advertisement -

Meiri áhugi á að þjóna ESB en heimaríkinu

Stjórnmál:

Arnar Þór Jónsson skrifaði:

„Hin pólitíska yfirstétt Evrópu undirritaði, í október 2004, samning um „Stjórnarskrá fyrir Evrópu“. Markmiðið var að sameina eldri samninga í einn texta, styrkja stofnanir ESB og „einfalda ákvarðanatöku“, sem þýddi að neitunarvald einstakra aðildarríkja var afnumið ýmsum sviðum, m.a. varðandi hælisstefnu, ólöglega innflytjendur, ytra landamæraeftirliti o.fl.

Eftir að Frakkar og Hollendingar höfnuðu samningnum í þjóðaratkvæðagreiðslum 2005 ákváðu forystumenn ESB að klæða efnið í annan búning, taka út orðið „stjórnarskrá“ og setja allar meginbreytingarnar inn í Lissabon-sáttmálann sem svo var innleiddur í gegnum þjóðþingin, án þjóðaratkvæðagreiðslna. Almenningur situr uppi með afleiðingarnar án þess að hafa fengið að kjósa um afhendingu valdsins til ábyrgðarlausra embættismanna í Brussel.

Sumarið 2026 höfnuðu Íslendingar, í þjóðaratkvæðagreiðslu aðildarviðræðum við ESB. Strax eftir að sú niðurstaða lá fyrir ákváðu forystumenn ríkisstjórnar Íslands að klæða efnið í annan búning, hætta að tala um „aðild að ESB“ og reyna að keyra í gegnum þjóðþingið frumvarp sem mælir fyrir um lagalegan forgang ESB réttar með gengisfellingu Alþingis og íslenskra dómstóla – og breyta þannig í raun stjórnskipun Íslands án þess að gefa þjóðinni kost á að kjósa um afhendingu valds síns í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Samhengið er skýrt í augum þeirra sem kunna að leggja saman 2 og 2 og draga ályktanir: Hin pólitíska stétt (atvinnupólitíkusar) hafa meiri áhuga á að þjóna ESB en heimaríki sínu.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: