- Advertisement -

Staðan er ekki svona slæm

Reykjavíkurborg:

Alexandra Briem skrifaði:

„Það er tvennt sem situr ennþá í mér með þessar uppsagnir hjá borginni.

Annað er það sem Pétur nefnir hér.

Jafnvel þó svo fólki finnist þurfa að fara í aðhald og niðurskurð, þá er það bara einfaldlega ekki rétt að staðan sé þannig að það þurfi að hlaupa til og fara í svona harkalegar bráðaaðgerðir, sérstaklega ef þær eru illa undirbúnar og ófyrirséð hvaða áhrif þær hafi á starfsemi borgarinnar og þjónustu. Það er bara einfaldlega ekki satt að staðan sé svona slæm.

Hitt snýst meira um mennsku og hugarfar. Hvernig vinnuveitandi viljum við að borgin sé.

Ég hefði ekki
tekið það í mál.

Í minni tíð vildi ég leggja áherslu á að borgin væri heiðarlegur og góður vinnuveitandi sem kæmi fram við starfsfólk og íbúa af virðingu og mennsku. Að starfsandi væri góður og fólki liði vel. Það er hluti af því að draga úr álagi og veikindum og að laða til hennar kröftugt og gott starfsfólk.

Auðvitað gekk það stundum mis vel, mismunandi aðstæður, stundum hart í ári, osfrv, en það var amk. alltaf viljinn að reyna það. Við vildum vera góður og heiðarlegur vinnustaður.

Ég hefði ekki tekið það í mál að koma svona fram við starfsfólk, hvað þá að tala svona um fólkið sem verið var að segja upp. Meira að segja í einstaka tilfellum þar sem ég vissi um einhvern sem hefði misst vinnuna sem hefði kannski ekki algjörlega verið að standa sig, þá fannst mér það ekki hlutverk pólitíkurinnar að skjóta þannig á fólk.

Þetta skapar ótta og álag og áhyggjur hjá þeim sem eftir sitja, og gerir fólk minna spennt fyrir því að koma og leggja líf og sál í að starfa að hagsmunum borgarbúa.

Hvers vegna þetta óðagot? Undirbúið frekar það sem þið viljið gera, fækkið stöðugildum yfir tíma, ef ykkur finnst það bráðnauðsynlegt. Og talið um fólk af virðingu.

Að gera þetta svona virkar bara eins og tilraun til að skora stig, ekki til að stjórna vel.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: