Grein:
Ólafur Þórarinsson, Labbi í Mánum, skrifaði:
Ómar Halldórsson mánaskáldið okkar góða kvað í einu af sínum snilldartextum:
Þú veist að auði fylgja alltaf völd,
þú veist að fátækt fylgir smán – –
Víst eru þetta orð að sönnu í okkar efnisheimi en ef við skyggnumst í þann huglæga sem er upphafið á öllum mannanna verkum er þessu þveröfugt farið því maður (kona) sem ágirnist og safnar endalausum auði verður 99,9% valdalaust verkfæri græðginnar og missir fljótt hina mannlegu ábyrgð, reisn og skyldur við umhverfi sitt og allt snýst um að græða græða eða eins og hjá öðrum fíklum, næsta skammt.
Í slíkum heimi geturðu keypt þér völd, kúgað og beygt allt (flest) undir þinn vilja en ef við lítum á andlegu hliðina sem þróast hefur með manninum og aðskilur hann frá dýrunum, þar er auðmaður núll og nix enda mennskunni ýtt til hliðar nema rétt til að græða meira. Í þannig heimi þarf samkeppni (stríð) til að hemja frekju og græðgi þar sem mannlegt eðli ætti að vísa veginn en í staðin er fararstjórinn ótti um að græða ekki nóg sem undirstrikar að þetta fólk er valdalausir þrælar áunninnar fötlunar. Þessu fylgja margar aukaverkanir til dæmis getur slík manneskja aldrei vitað hverjir eru raunverulegir vinir því þeir sem aðhyllast Mammon vita jafnvel ekki sjálfir hvort það er persónan eða peningarnir sem þeir elska.
Kapítalismi er því skortur á mannlegum úrræðum nú eða trikk til að þeir siðblindu geti mokað til sín eigum annara en hugmyndafræðin er eins og svarthol sem endar hvergi en gleypir hin mannlegu gildi sem eru tilfinning og umhyggja fyrir okkar smæstu systrum og bræðrum. Þar sem peningar og græðgi eru látin setja sjálfu sér skorðurnar verður það ávallt sá slóttugasti sem nær yfirhöndinni svo siðleysið margfaldast eins og rúllandi snjóbolti. Umhyggja fyrir þeim sem ekki tilheyra þessum hugarheimi glötunar er engin og riddarar sjálfsdýrkunarinnar reyna að ala á sundrung og hatri í þeirra garð og innan þeirra raða svo hægt sé að hrekja þá frá kjötkötlum sérhagsmunanna.
Þegar kapítalistar stæra sig af að það skapist atvinna og það sem þeir kalla velmegun af gróðabrölti þeirra skilja þeir því miður ekki að þegar hvatinn er hömlulaus girnd í auð og völd eykst áfergjan þar til blaðran springur og þeir valdalausu sem borið hafa byrðarnar sitja uppi með skaðann því sökudólgarnir hafa fyrir löngu kviksett sín mannlegu gildi og kunna því ekki að skammast sín.
Augljósasta dæmið nú er gervigreindin þar sem maður er dolfallinn yfir stórkostlegu hugviti og þrautseigju þeirra sem skapa hana, en svo eru það mestu fífl veraldar sem ráðskast með hana vegna „ríkidæmis“ sem þeir hafa öðlast með fyrrgreindum hætti.