Stjórnmál:
Arnar Þór Jónsson skrifaði:

Allir sem komnir eru til vits og ára muna eftir Sjálfstæðisflokknum sem stórveldi. Frá lýðveldisstofnun til dagsins í dag hefur flokkurinn átt aðild að ríkisstjórn í um 60 ár. Þessi árangur þarf ekki að koma á óvart þegar litið er til þess að flokkurinn á bestu stefnuskrá sem nokkur stjórnmálaflokkur getur átt. Auk þess státaði hann af miklum mannauð, sem í tímans rás bar uppi málefnastarf flokksins. Flokkurinn varð til við samruna Íhaldsflokksins og Frjálslynda flokksins árið 1929 og sameinaði löngum það besta úr báðum hefðum, þar sem menn vildu standa vörð um það besta sem reynslan hafði fært okkur en vera þó tilbúnir til að hlusta á ný sjónarmið og stuðla að framförum á grundvelli gagnrýninnar hugsunar og kröftugra skoðanaskipta. Rauði þráðurinn var að halda ríkisvaldinu í skefjum, standa vörð um frelsi einstaklingsins til orðs og athafna, eiga frjáls viðskipti bæði til austurs og vesturs, verja menningararf Íslands og leggja rækt við tungumál okkar og sögu, reka sjálfstæða utanríkisstefnu sem stuðlaði að gagnkvæmum viðskiptum og skilningi, standa vörð um varnarsamning okkar við Bandaríkin, verja náttúruauðlindir Íslands og yfirráðarétt þjóðarinnar yfir lögum sínum, landinu og efnahagslögsögunni. Allt átti þetta samhljóm hjá um og yfir 40% þjóðarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn var óvinnandi vígi. En eitthvað breyttist – og ég er ekki sannfærður um að breytingarnar hafi komið utan frá.
Slíkur fals-flokkur á
engan tilvistarrétt.
Eftir því sem ég hugsa meira um þetta finnst mér blasa við að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið yfirtekinn af vinstri mönnum sem komust til áhrifa undir fölsku flaggi: If you can´t beat them, join them. Þetta voru menn (og konur) sem kunnu að segja réttu setningarnar á réttu augnablikunum, enginn fundur var haldinn án þess að mæra „sjálfstæðisstefnuna“ í orði en ekki verki, því þessi nýja tegund „sjálfstæðismanna“ sýndi stefnunni enga hollustu í framkvæmd. Oft á tíðum var þetta snoppufrítt fólk sem var glæsilegt á velli og kunni svo vel að koma fyrir sig orði að landsfundarfulltrúar nánast táruðust undir þrautþjálfaðri ræðusnilldinni og sýndu þakklæti með standandi lófataki.
Þannig gerðist það að gömlu, góðu Sjálfstæðismennirnir misstu flokkinn sinn í hendurnar á fólki sem var í raun aldrei neitt Sjálfstæðisfólk. Útkomuna þekkja allir: Sjálfstæðisflokkurinn slitnaði af rótinni og fór að innleiða stefnumál sem traustustu stuðningsmenn flokksins hefðu aldrei kosið sjálfir: Hærri skatta, fleiri ríkisstofnanir, meira ríkiseftirlit, undirgefni gagnvart ESB og stuðningur við frumvarpið um bókun 35, samstarf við róttæka vinstri menn í 7 ára ríkisstjórn undir forystu Katrínar Jakobsdóttur, stuðningur við vopnakaup og stríðsrekstur, lokun sendiráðs í Rússlandi, opin landamæri o.s.frv. Allt hefur þetta orðið til þess að veikja Sjálfstæðisflokkinn, því til hvers að kjósa flokk (og starfa innan flokks) sem stýrir stöðugt til vinstri og hefur látið hrekja sig af grunninum? Ég hef sagt það áður og segi það aftur: Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn.
Guðrún Hafsteinsdóttir.
Guðrún Hafsteinsdóttir villti ekki á sér heimildir til að verða formaður flokksins og hefur góðan vilja til að endurreisa flokkinn á réttum grunni, en þar þarf hún væntanlega fyrr eða síðar að glíma við hulduherinn sem hreiðrað hefur um sig svo víða, eins og að framan er lýst. Meðal þess sem hún gæti gert til að styrkja stöðuna væri að ráða til sín traustan hugmyndafræðing, Hjört J. Guðmundsson, því Hjörtur hefur nú verið settur í „Berufsverbot“ hjá íslenska ríkinu, að Austur-Þýskri fyrirmynd.
Fyrirsögnin er Miðjunnar.