- Advertisement -

Evrópusambandið og nýsköpun: fullyrðingar um óaðlaðandi umhverfi standast ekki – Google hrekur þær

Ég hygg að þjóðin bíði núna eftir afsökunarbeiðni eða í það minnsta viðurkenningu á því að hafa ekki sagt alla söguna.

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst var því haldið fram að Evrópusambandið væri óaðlaðandi fyrir nýsköpunarfyrirtæki — og sérstaklega fyrir þau stærstu. Regluverk ESB væri of strangt, of flókið og kæfði vöxt og frumkvöðlastarf. Þetta var notað sem rök gegn því að Ísland ætti að hefja aðildarviðræður.

En þessi fullyrðing stenst ekki skoðun, raunveruleikinn er annar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Google: Stærsta einstaka fjárfesting í Evrópu – innan ESB

Google tilkynnti í dag að fyrirtækið fjárfesti 2 þúsund milljarðar króna í gervigreindar‑innviðum í Finnlandi. Þetta er stærsta einstaka fjárfesting Google í Evrópu hingað til. Finnland er orðið „Texas Evrópu“ fyrir gagnaver og gervigreindar-innviði .

Fjárfestingin felur í sér:

  • stækkun gagnavera með hundruðum megawatta afkastagetu
  • 22 ára raforkusamning við Fortum
  • uppbyggingu orkukerfis, netstyrkingar og nýja orkugetu
  • langtíma innviðauppbyggingu sem treystir á regluverk ESB

Þetta er nákvæmlega það sem risafyrirtæki gera þegar þau treysta umhverfi, innviðum og regluverki. Evrópusambandið er aðdráttarafl á sviði nýsköpunar og fullyrðingar um að sambandið sé óaðlaðandi er í beinu ósamræmi við hegðun stærstu tæknifyrirtækja heims. Hér eru nokkur dæmi:

Google

  • Fjárfestir 2 þúsund milljarðar króna í Finnlandi
  • Stækkar gagnaver í Hollandi, Belgíu og Írlandi
  • Velur ESB‑ríki vegna orku, innviða og regluverks

Microsoft

  • Byggir risavaxna gagnaverklasa í Svíþjóð og Þýskalandi
  • Setur upp Azure‑innviði í Danmörku og Spáni
  • Velur ESB vegna stækanlegra innviða og netöryggisreglna

Amazon (AWS)

  • Stækkar gagnaver í Dublin, Frankfurt, París og Milano
  • Velur ESB vegna innri markaðar og stöðugleika

Meta

  • Byggir stór gagnaver í Danmörku
  • Velur ESB vegna orkuöflunar og regluverks

Nvidia

  • Setur upp gervigreindar‑supertölvu í Þýskalandi og Frakklandi
  • Velur ESB vegna evrópskra orkuframkvæmda og rannsóknarumhverfis

Hvers vegna velja risafyrirtæki ESB?

1. Fyrirsjáanlegt regluverk, strangt regluverk er kostur. Það tryggir lagalegt öryggi, stöðugleika, samræmdar reglur á 450 milljóna manna markaði og skýran netöryggisramma.

2. Aðgangur að stórum orkukerfum og innviðum sem geta stækkað hratt. Gervigreindar innviðir krefjast mikillar orku og ESB ríki geta boðið stór raforkunet, langtímasamninga, stór iðnaðarsvæði og hraðar leyfisveitingar.

3. Innri markaður ESB. Fyrirtæki vilja vera þar sem viðskiptavinir eru og þar sem reglur eru samræmdar. Aðgangur að fjárfestingum og orkuframkvæmdum er tryggðilegur.

4. Pólitískur stöðugleiki. ESB‑ríki eru með fyrirsjáanlegt stjórnsýslukerfi, stöðuga stefnumótun og skýrar reglur um gagnaver og gervigreindar‑innviði.

Fullyrðingin um að Evrópusambandið sé almennt óaðlaðandi fyrir nýsköpun er því röng eða í besta falli einföld. Fjárfestingar alþjóðlegra tæknifyrirtækja sýna að ESB-ríki geta boðið eftirsóknarverða innviði, orku, markaðsaðgang og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi. Regluverk sambandsins getur skapað áskoranir, en dæmin sýna að það útilokar ekki umfangsmikla uppbyggingu á sviði nýsköpunar.

Fullyrðingar Hilmars Veigars Péturssonar og Guðmundar Fetram um að ESB sé óaðlaðandi var því afvegaleiðandi þar sem þeir nýttu stöðu sína sem menn nýsköpunar til að sannfæra fólk að kjósa nei í þjóðaratkvæðagreiðlunni í ágúst. Ég hygg að þjóðin bíði núna eftir afsökunarbeiðni eða í það minnsta viðurkenningu á því að hafa ekki sagt alla söguna. Orð þeirra höfðu áhrif stöðu þeirra vegna og var framganga þeirra ósanngjörn gagnvart upplýstri umræðu.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: