Stjórnmál:
Björn Leví Gunnarsson skrifaði:
„Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, telur Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra hafa „spilað yfir sig“ með ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna (SÞ) og efast um að framsetning hennar hafi verið taktísk.“
Þetta er fyndið, annars vegar á ÞKG að hafa „spilað yfir sig“ og hins vegar var er efast um að framsetningin hafi verið taktísk.
Gagnrýni SDG er
hins vegar rökleysa.
Eru fleiri en ég sem sjá hvernig þetta er órökrétt niðurstaða. Það er ekki hægt að skipuleggja svo mikið að spilað sé yfir sig, annars vegar. Og hins vegar ekki vera taktískur á sama tíma.
Það er vissulega hægt að gera taktísk mistök, að taka ranga taktíska ákvörðun. Eða „aðra“ taktíska ákvörðun en einhver annar er sammála um.
En nauðsynlega var um taktíska ákvörðun að ræða ef verið var að spila á spilin í boði. Svona eins og það var taktísk ákvörðun að fara með peninga í skattaskjól eða að taka kúlulán. Hvort tveggja eru taktískar ákvarðanir. Slæmar taktískar ákvarðanir.
En þessi gagnrýni SDG er hins vegar rökleysa. Þær eru leiðinlegar og ómálefnalegar.
Þetta voru kostirnir, að mati SDG:
„Annars vegar að fara varlega, leggja áherslu á almenna afstöðu Íslands og gæta þess að styggja ekki bandamenn. Hins vegar hefði hún getað tekið af skarið og vakið athygli á málum sem aðrir leiðtogar veigruðu sér við að ræða.“
Með öðrum orðum þá eru ráðleggingar SDG að læðast meðfram veggjum og láta ekki sjá sig og hins vegar gera það sem ÞKG gerði. En að hans mati gerði hún hvorugt. Sem er auðvitað ósatt. Miðað við hans eigin uppsetningu á því sem var í boði (það eru fleiri valkostir auðvitað, en látum það liggja á milli hluta).
Í staðinn er áskökunin:
„Það er farið í það að reyna að toppa aðra í fullyrðingum þeirra, oft á tíðum fullyrðingum sem standast ekki alveg skoðun og eru jafnvel til þess fallnar að ýta undir vandann frekar en hitt – og fer svo í uppáhaldið sitt, að ásaka aðra um „umbúðarmennsku“.
Það hefði í staðinn átt að:
„Það hefði mátt benda á það að engin nágrannaþjóð Palestínumanna tekur við flóttamönnum þaðan.“
Nauðsynlegt að
skila skömminni.
Þetta ber auðvitað vott um afskaplega slæma þekkingu á því sem hefur gerst á þessu svæði á undanförnum áratugum. Það eru bara ansi góðar ástæður fyrir því að nágrannaþjóðirnar taka ekki við flóttafólki eins og þær gerðu áður. Það hjálpar engum að spyrja svona spurninga þegar viðkomandi ætti að vita svarið við þeim – en annað hvort gerir það ekki og dreifir þar af leiðandi fávisku sinni, eða þá að hann veit það og setur málið vísvitandi í villandi umbúðir.
Í stuttu máli tóku nágrannaþjóðir Ísraels við fullt af flóttafólki á árum áður. Stríðið hélt samt áfram og úr varð að árásir Ísraela beindust að þeim. Út af áframhaldandi átökum frá fólki sem flúði Ísrael. Það olli þó nokkrum vandamálum í nágrannaríkjunum, og gerir enn. Þess vegna er það mjög eðlilegt að þær þjóðir einblíni á að það þurfi að leysa vandamálið innan landamæra Ísrael í stað þess að endurtaka fyrri atburði.
Það eru fleiri ástæður, en óþarfi að fara út í það hérna.
Það er hægt að gagnrýna heilan helling í þessu máli. En það er nauðsynlegt að skila skömminni af því á réttan stað til Ísrael og nokkurra þjóða Evrópu sem eru í meðvirknikasti með Ísrael. Bandamenn verða að geta gagnrýnt bandamenn. Við eigum ekki að eiga vini bara til þess að leyfa þeim (eða þeir leyfa okkur) að heyja stríð.