- Advertisement -

Þegar Sjálfstæðisflokkurinn var keyptur

„Ólafur Ragnar var þá á þeirri skoðun að frekar en taka þátt í EES-samningnum, sem hann taldi fráleita hugmynd, ætti Ísland að taka skrefið að fullu – og ganga í ESB!“

Össur Skarphéðinsson.

Össur Skarphéðinsson skrifar:

„Eldskírn mín í þingmennsku var að fylgja í fótspor Jóns Baldvins þegar EES-samningurinn var samþykktur. Ég var þá nýkjörinn formaður þingflokks Alþýðuflokksins og engum datt í hug að á Íslandi yrði síðar feikisterk hreyfing kringum hugsanlega aðild að ESB.

Þá voru samskiptamiðlar að vísu ekki komnir til sögunnar, en í minningunni eru átökin um EES-samninginn mun níðskárri og hatrammari en fylgdu atkvæðagreiðslunni um nýliðna helgi.

Mektarbóndi vildi
drekkja JBH.

Ég minnist þess að á fundi í Ýdölum lagði mektarbóndi til að JBH yrði settur í poka, grjót með, og síðan sökkt í ána. Síðar á fundinum dró bóndi tillöguna til baka. Rökstuðningurinn var sá að eftir að hafa hugsað málið hefði hann komist að þeirri niðurstöðu að slík endalok leiðtoga jafnaðarmanna gætu haft voveifleg áhrif á laxastofninn í ánni.

Á fundi í Skagafirði stóð upp virðuleg maddama og kvaðst gjarnan vilja leggja til kindabyssu sína svo búa mætti ráðherranum snemmbúinn aldurtila.

Í dag er þó hvergi að finna jafndygga stuðningsmenn EES-samningsins og í umdæmi Þórólfs kaupfélagsstjóra. Við Einar Karl Haraldsson, sem eitt sinn vorum saman iðnaðarráðherrar, höfum enda frá öndverðu kallað það “skagfirska efnahagssvæðið.”

Svona snýst allt í hring. Jafnvel Sjálfstæðisflokkurinn sem í dag mærir EES-samninginn flokka best og mest, talaði harkalega gegn honum í fyrstu kosningabaráttu minni, 1991. Hann vildi fremur tvíhliða samning við Evrópusambandið sem þá var vitlausasta hugmyndin sem völ var á.

Ólafur Ragnar var þá á þeirri skoðun að frekar en taka þátt í EES-samningnum, sem hann taldi fráleita hugmynd, ætti Ísland að taka skrefið að fullu – og ganga í ESB!

…og blessaðan
Sjálfstæðisflokkinn…

Alveg einsog hann skipti um skoðun á EES-samningnum held ég að margir úr yngstu kynslóðinni sem í raun réttri felldi JÁ-ið um helgina, eigi líka eftir að snúast 180 gráður einsog hann. Inn í framtíð sem við sjáum ekki í dag eiga þeir eftir að fagna því augnabliki þegar Ísland mun um síðir (fer eftir Noregi og Rússlandi) breyta núverandi aukaaðild í fulla þátttöku í ESB.

Til að ljúka sögunni um EES-samninginn og blessaðan Sjálfstæðisflokkinn – sem svo oft þarf að kippa upp úr forarpyttum sögunnar – þá bjargaði Alþýðuflokkurinn þjóðarhag einsog svo oft áður og keypti heilan flokk til stuðnings við EES-samninginn með einu stykki forsætisráðherrastóls. Þannig fékkst stuðningur Sjálfstæðismanna við EES-samninginn.

Sannarlega hrossakaup – en voru það ekki bestu hrossakaup Íslandssögunnar?“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: