- Advertisement -

Sækja ný viðmið lengra inn í hafdjúpið svarta

Stjórnmál:

Þröstur Ólafsson skrifaði:

Það veldur áhyggjum að tveir íslenskir stjórnmálaflokkar yst til hægri fari í kynnis- og eins konar námsferðir í höfuðstöðvar tveggja erlendra stjórnmálahreyfinga, sem er heimilisföst enn lengra inn í svartnætti harðneskju og hagsmunagæslu ofurauðvaldsins. Það boðar ekkert gott. Liðnir eru þeir tímar þegar Sjálfstæðisflokkurinn einkenndi sig með slagorðinu, stétt með stétt. Jafnframt því að vera flokkur einkaframtaksins kusu hann fleiri verkmenn en nokkurn annan flokk.

Fyrirmyndir flokksins voru evrópskar. Undir lok liðinnar aldar fara forystumenn að hans að móta stefnu sína við breska íhaldsflokkinn. Norrænir íhaldsflokkar hvað þá aðrir hægri flokkar í álfunni, höfðu ekkert aðdráttarafl lengur. Nú þarf að sækja viðmið enn lengra inn í hafdjúpið svarta – til bandaríska Repúblikanaflokkinn. Þar er enn alvöru hægri stefna – enginn evrópskur spónamatur.

…losa sig við
fóðrið frá Trump.

Við munum það einnig að á fyrri helmingi liðinnar aldar voru tveir vinstri flokkar, Kommúnista- og síðar Sósíalistaflokkurinn, sem sendu forystumenn sína til Moskvu í leit að réttri línu. Þeir fylgdu henni að mestu fram á sjöunda áratuginn þegar Alþýðubandalagið reis uppúr ösku sovét átrúnaðarins. Áhrifa þessarar innrætingar gætti þó enn innandyra í nýja flokknum. Það birtist okkur m.a. í stefnumörkun áhrifamanna hreyfingar herstöðvaandstæðinga,

Þegar horft er til baka voru sovésku áhrifin ekki neinn vorboði hvað þá gróðursæll áburður á vorkalda íslenska jörð.

Gætið varhug við þeirri áhersluskerpingu sem fylgja mun hjá hægri flokkunum tveimur, þegar þeir fara að melta og losa sig við fóðrið frá Trump.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: