- Advertisement -

Fullgildir og fullvalda – eða farlama þjóðhyggja?

Þröstur Ólafsson hagfræðingur skrifar:

Heimsmyndin breytist með undrahraða. Við höfum tvo kosti svipað og 1949. Setjast á bekk með evrópskum þjóðríkjum í nýju þjóðabandalagi og deila fullveldi með þeim, eða kúldrast utanveltu, sjálfhverf og óvirk „fullvalda“ þjóð. Heimurinn er orðinn harður, tillitslaus og árásargjarn.

Bjarni Benediktsson og Jón Baldvin Hannibalsson.
Aðildin að Norður-Atlantshafsbandalaginu (NATO) annars vegar. Hins vegar þátttakan í Evrópska efnahagssvæðinu (EES).

Við Íslendingar höfum átt því láni að fagna að hafa á mikilvægum stundum í sögu okkar átt afburðamenn sem tóku af skarið og leiddu þjóðina út úr aldagamalli nesjamennsku og önghugsun til víðsýnni heimsmyndar. Menn sáu að hagsmuna hennar var ekki best gætt með innilokun og aðflutningsbönnum. Nafngreining einstakra forystumanna orkar tvímælis. Þó skulu nefndir tveir foringjar á lýðveldistíma sem tóku af skarið og leiddu þjóðina inn í nýjan raunveruleika, sem þátttakanda í gagnkvæmu fjölþjóðlegu samstarfi. Bjarni Benediktsson eldri og Jón Baldvin Hannibalsson. Aðildin að Norður-Atlantshafsbandalaginu (NATO) annars vegar. Hins vegar þátttakan í Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Með fyrri skuldbindingunni staðsetti þjóðin sig varanlega með vestrænum lýðræðisþjóðum. Stöðvuð var öflug brimalda hlutleysis og einangrandi þjóðhyggju. EES-samningurinn forðaði þjóðinni frá efnahagslegu einstigi, úr afdalahætti og þjóðernislegu mikillæti. Viðskiptalífið tók stakkaskiptum. Velmegun jókst og kjör bötnuðu meir en nokkru sinni fyrr. Í báðum samningunum fólst viss skerðing fullveldis, sem fáa truflar og enginn tekur eftir. Þessir samningar lentu í heiftarlegri andstöðu innanlands með fullveldisskerðingu og ásökunum um undirlægjuhátt. Leifar þeirrar andstöðu hafa sameinast á ný undir sömu leiðarstjörnum.

Samþætting eða einþætting

Í okkar heimi er engin þjóð fullvalda en flestar þó sjálfstæðar.

Nú stöndum við frammi fyrir nýrri ákvörðun um aðildarviðræður um enn nánari tengingu við vina- og grannþjóðir. Rafrænn heimur og gervigreind hafa afmáð landamæri. Heimsmyndin breytist með undrahraða. Við höfum tvo kosti svipað og 1949. Setjast á bekk með evrópskum þjóðríkjum í nýju þjóðabandalagi og deila fullveldi með þeim, eða kúldrast utanveltu, sjálfhverf og óvirk „fullvalda“ þjóð. Heimurinn er orðinn harður, tillitslaus og árásargjarn. Evrópskar vinaþjóðir þétta óðum samvinnu sína. Vilja ekki láta ofurveldin ráðskast með sig sem máttvana peð. Í þannig heimi þurfum við skjól og bólfestu. Samastað. Ekki sem þjóð á flótta undan sjálfri sér, heldur sem uppréttur þátttakandi sem styrkja vill sjálfstæði sitt og velmegun. Þjóðernishyggja er hættulegt pólitískt verkfæri, því hún skírskotar til neikvæðra tilfinninga, þröngrar hugsunar, bábilja og minnimáttarkenndar. Hún einangrar, myndar aldrei sameiginleg varnarbandalög velmegunar og fríðar. Hún er ætíð út af fyrir sig árásargjörn, hættuleg. Ekki böðlast milli boða og brims, til þess eins að sýnast vera fullvalda og sterk. Í okkar heimi er engin þjóð fullvalda en flestar þó sjálfstæðar. Fullveldi felst í því að geta takmarkað eigingirni sína, bægt skaðræði frá og staðið vörð um meginhagsmuni þjóðarinnar. Til þess þarf þjóðin að sitja við borðið og taka þátt í dagskrárgerð með nágrannaþjóðum.

Utangarðs og án EES?

Konungshöllin í Osló.
Þegar og ef Noregur verður meðlimaríki ESB, þá munu aðildarkostir okkar og framtíðarstaða versna. Það er heldur ekki góður kostur að verða Norðmönnum samferða.
Mynd: Giulia Grani/Unsplash.com.

Komið hafa fram efasemdir um framtíð ESB. Öfgafullir Nei-flokkar vilja ESB feigt. Þessi afstaða getur torveldað, en ógnar ekki tilvist bandalagsins. Til þess þurfa Nei-istar yfirráð yfir þjóðþingum. Þeir eru fjarri því. Þeir gætu skaðað eigin þjóðir, valdið erfiðleikum og staðið í vegi fyrir mikilvægum ákvörðunum. Eyðileggja þó ekki bandalagið. Þeir hafa engin efni á því. Evrópskir Nei-arar hafa skyld markmið og íslenskir Nei-arar, þótt stefna og taktík sé ólík. Þeir mæra báðir styrk eigin þjóða og óskert fullveldi, meir en deilingu þess með öðrum. Þetta er hin nýja þjóðernisstefna. Fengum við okkur ekki fullsödd af henni á liðinni öld?

Næstu nágrannaþjóðir okkar Norðmenn og Bretar hugsa einnig sinn gang. Áhrif Breta hafa stórminnkað eftir Brexit. Þeir hafa engan vettvang lengur til að beita sér á. Hafa engin áhrif á aðgerðir og þróun mála á meginlandinu. Þeir finna verulega fyrir einangrun sinni og glötuðum viðskiptum. Norðmenn munu trauðla vilja til frambúðar liggja áhrifalausir og óbættir hjá garði nágrannaþjóða sinna. Hvað ætlum við að gera ef Nei-ið sigrar hér en bæði Bretland og Noregur eru – á eigin styrkleika – á leið eða orðnir aðilar að ESB? Þetta er grafalvarleg spurning. Bíða og sjá hvað setur, eða sækja um með eigin veikleika í veganesti?

Þegar og ef Noregur verður meðlimaríki ESB, þá munu aðildarkostir okkar og framtíðarstaða versna. Það er heldur ekki góður kostur að verða Norðmönnum samferða. Smugudeilan kenndi okkur hve harðdrægir þeir eru þegar hagsmunir þeirra eru í húfi. Líkt og við. Með Noreg innan ESB má ætla að aðgöngumiði okkar verði dýrari. Þá stöndum við ein, eins og gerst hefði ef hlutleysissinnar og sósíalistar hefðu orðið ofan á 1949 og kyndilberar einangrunar 1994. Það er mikil skammsýni að halda að það yrði bara allt í lagi. Kjör okkar og staða í álfunni myndu bíða hnekki. Þá breyttumst við í biðjandi þjóð. Nú höfum við einstakt tækifæri til að sjá hver staða okkar er. Til þess þurfum við samning sem við greiðum atkvæði um í nýrri þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er óábyrg forherðing að telja sér trú um að ekkert sé um að semja. Sé það rétt, þá verður enginn samningur staðfestur í nýrri atkvæðagreiðslu.

Kannski Kristrún Frostadóttir verði þriðji forystumaður þjóðar sinnar sem fær sæti á afreksbekknum?

Er reynsla fyrrum umsóknarþjóða ómerkilegt þvaður? Mikið er stórlætið. Staða okkar nú er sterk. Við okkur gæti blasað að verða í forystu fyrir sjávarútvegsmálum bandalagsins. Þeir vita að þar stöndum við fremstir þjóða. Eftir að Noregur er kominn inn verður það torsótt. Þeir tímar eru liðnir þegar sjálfstæði þýddi jafnræði í samningum. Tvíhliða samningaviðræður milli smáríkis og stórveldis eru ekki líklegar til farsællar niðurstöðu fyrir smáríkið, nema sá stóri þurfi, af öðrum ástæðum, á því að halda. Samningaþófið um EES er lærdómsríkt. Árangur okkar við samningsborðið bar lítinn árangur fyrr en hinar EFTA-þjóðirnar lögðust á árina með okkur. Þá er ólíklegt að ESB hafi mikinn áhuga á að halda EES-samningum gangandi án Noregs. Enda gætum við ekki staðið einir undir þeim kostnaði.

Við verðum að gera okkur glögga grein fyrir þessu samhengi og þeim kostum sem við gætu blasað. Við þurfum meðbyr til að sigla farsællega. Þursalegt NEI getur reynst okkur göróttur og beiskur drykkur síðar meir. Kannski Kristrún Frostadóttir verði þriðji forystumaður þjóðar sinnar sem fær sæti á afreksbekknum?

Grein Þrastar birtist fyrst í Mogganum í dag.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: