Í dag situr hún í stjórn fasteignafélags sem hagnast á háu leiguverði á leigumarkaði sem margir landsmenn eiga erfitt með að fóta sig á. Hún er komin í skjól hjá peningaöflunum.
Jóhann Þorvarðarson.
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Þið munið eftir henni. Hún kom Bjarna Benediktssyni til valda og talaði um réttlæti handa fórnarlömbum Thorvaldsens vöggustofunnar. Þegar á hólminn var komið varð hins vegar ekkert úr efndum um sanngirnisbætur. Nýtti sér málið til pólitískrar ímyndarsköpunar.
Hún taldi einnig eðlilegt að aldraðir og öryrkjar byggju við kjör langt undir mannsæmandi launum. Á sama tíma sýndi hún skilning á sjónarmiðum þeirra sem vildu að fjármagnstekjur nytu hagstæðari skattameðferðar en launatekjur. Blasti þar við skýr forgangsröðun.
Þegar upp komst
um aðkomu
Bjarna Ben…
Þegar upp komst um aðkomu Bjarna Ben að því að koma í veg fyrir að Þorvaldur Gylfason yrði ráðinn ritstjóri hins virta fagrits The Nordic Economic Policy Review heyrðist ekkert frá henni. Ísland missti af tækifæri til að skapa sér virðingarsess á alþjóða vettvangi í stað ásýndar spillingar.
Í kóvídfaraldrinum lagði hún meiri áherslu á stuðning við fyrirtæki en bein úrræði fyrir einstaklinga sem urðu fyrir tekjufalli. Það var pólitískt val og sýnir hennar pólitísku forgangsröðun.
Frá undirritun Lífskjarasamninganna árið 2019 hélt hún því stöðugt fram að tekjulægstu hóparnir nytu mest góðs af skattabreytingum. Niðurstaðan varð hins vegar á annan veg og ávinningurinn dreifðist mest á hina efnamestu.
Hún skipaði mann í stól seðlabankastjóra sem reyndist starfinu ekki vaxinn. Á hans vakt hefur verðbólga verið margfalt meiri en hjá nágrannaþjóðum okkar. Þetta er sami maðurinn og sagði landsmönnum að vextir væru komnir til með að vera lágir og að verðtryggingin væri dauð. Raunin varð önnur og landsmenn hafa greitt verðið. Samt endurskipaði hún hann í embættið.
Í miðjum kóvítfaraldrinum, þegar Íslensk erfðagreining bauð fram mikilvæga aðstoð í þágu almannaheillar, var hún fjarverandi. Hún kaus að halda sig í sumarfríi á meðan mikilvægar ákvarðanir biðu. Það var ekki fyrr en fyrirtækið gaf skýrt til kynna að samstarfið væri í hættu að hún kom til byggða.
Hún bauð sig fram til forseta Íslands. Niðurstaðan varð afgerandi áminning um að pólitískt vægi hennar var ekki lengur það sem áður var. Reyndist framboð hennar vera hin mesta sneypuför.
Í dag situr hún í stjórn fasteignafélags sem hagnast á háu leiguverði á leigumarkaði sem margir landsmenn eiga erfitt með að fóta sig á. Hún er komin í skjól hjá peningaöflunum.
Nú vill þessi
sama kona
endurvekja kossinn…
Þessari sömu konu tókst að gera heilan stjórnmálaflokk óþarfan í augum kjósenda með óheilindum og eilífðarkossi við Sjálfstæðisflokkinn að frönskum hætti.
Nú vill þessi sama kona endurvekja kossinn og leiðbeina kjósendum um hvernig þeir eigi að kjósa á laugardaginn, eins og hún búi enn yfir pólitískri vigt. Áhrifin eru aftur á móti uppurin, þótt hún fatti það ekki sjálf.
Ég hygg að margir upplifi svipaða velgju gagnvart þessum afskiptum og þeir gerðu í forsetakosningunum. Ekki vegna þess að fólk þoli ekki skoðanaskipti heldur vegna þess að sendiboðinn hefur misst trúverðugleika. Þegar ferill stjórnmálamanns einkennist af ákvörðunum sem hafa ítrekað þjónað sérhagsmunum fremur en almenningi er ekki hægt að stíga fram sem trúverðugur leiðbeinandi þjóðarinnar.
Fólk er ekki vitlaust þó hún haldi það.