
Guðmundur Þ. Ragnarsson skrifaði:
Nenni ekki að tjá mig um utanríkisráðherra sem ekki er eyðandi orðum á. Eina sem mig langar að vita frá henni er hver óvinurinn er sem hún er að verjast í öllu þessu stríðsbrölti sínu.
Það er von mín enn hugsanlega bara óskhyggja að með nýjustu vaxtahækkun séum við að horfa upp á gjaldþrot popúlismans.
Nú stígur öll hjörðin fram hvort sem er úr verkalýðshreyfingunni eða pólitíkinni og flytur gömlu innihaldslausu fasana.
Engar lausnir, bara endurtekið efni og við spólum í sama farinu.

Það er sorglegt að horfa upp á þetta, verkalýðshreyfingin ætti að fara í naflaskoðun og reikna út hvað Vilhjálmur Birgisson, Ragnar Þór Ingólfsson, Kristján Þórður Snæbjarnarson og fleiri frasa-popúlistar eru búnir að kosta almenning í þessu landi.
Síðan eru það hin gjaldþrota stjórnvöld sem ættu að segja af sér vegna getuleysis.
Ekki vera að draga athyglina frá eigin getuleysi með þessari Evrópusambandsvegferð þar sem helstu popúlistarnir í þeirra liði eru sífellt með ósannindi og rangfærslur sér og málstaðnum til framdráttar.

Nenni ekki að tjá mig um utanríkisráðherra…
Óheiðarleikinn er algjör og það kæmi mér ekki á óvart að forsætisráðherra væri búinn að gleyma því á morgun hvað hún heitir, eins og dæmin sanna hvað lítið er að marka fullyrðingar hennar og loforð. Nenni ekki að tjá mig um utanríkisráðherra sem ekki er eyðandi orðum á. Eina sem mig langar að vita frá henni er hver óvinurinn er sem hún er að verjast í öllu þessu stríðsbrölti sínu.
Bráðaverkefnið í íslensku samfélagi er að hreinsa til í pólitíkinni og verkalýðshreyfingunni svo hægt verði að taka á efnahagsmálunum.
Það eru til einfaldar lausnir með þríhliða vinnumarkaðmódeli, stjórnvalda, launþega og atvinnurekanda.
Ef einhver ætlar að halda því fram að þetta heimatilbúna ástand í efnahagsmálunum lagist með inngöngu í ESB þá ætti hann ekki að opinbera fáfræði sína og hafa vit á því að hafa það fyrir sig.
Það er svo grátlegt að horfa uppá þetta og hvernig við höfum glutrað niður mörgum tækifærum frá 2018 til að koma hlutunum í lag, í okkar efnahagsmálum, óháð Covid og Grindavík.
Það er svo mikill óheiðaleiki í gangi í þessu samfélagi að það er ekki glóra að fara í að sækja um aðild að Evrópusambandinu með núverandi stjórnvöld, því er ég búinn að segja NEI í kjörklefanum. (Kaus áður en ég fór út.)
Er ekki tilbúinn að leggja framtíð okkar í hendur á einstaklingum sem ég treysti ekki.“