- Advertisement -

„Afstaða Ólafs Ragnars og Ögmundar skiptir ritara máli“

„Allt, sem þeir hafa gert á sínum atkvæðatökkum, var rangt.“

Vilhjálmur Bjarnason, fyrrum alþingismaður, skrifar grein í Mogga dagsins

Hér á eftir fer niðurlag greinar hans:

„Sjálfstæðisflokkurinn er kominn í undarlegt samband við afturhaldsöfl í Vinstri-grænum og Framsóknarflokknum, sem hafa oftast verið á nei-takkanum í erlendum samskiptum. Afstaða Ólafs Ragnars og Ögmundar skiptir ritara máli. Allt, sem þeir hafa gert á sínum atkvæðatökkum, var rangt.

Það verður aldrei af Gunnari Braga, Lilju Dögg og Guðlaugi Þór tekið að öll voru þau afbragðs EES-ráðherrar. Jafnvel þótt plokkfiskur Gunnars Braga um afturköllun aðildarviðræðna að Evrópusambandinu væri slæm matseld, enda skilur ekki nokkur maður framgang þess máls.

Afturhaldsöfl eins og Guðni Ágústsson og Jón Bjarnason, eitt sinn landbúnaðarráðherrar, hafa aðeins fært eymd og fátækt í sveitir landsins.

Hagsældin hefur komið með frjálsum erlendum viðskiptum við fullvalda þjóðir.

Ósóminn

Ósóminn hjá ríka fólkinu í landbúnaði og sjávarútvegi er eins og sjórinn. Ef maður vissi hvað væri í honum færi maður vart í fótabað í sjó. Er ekki rétt að draga fram rökstudda afstöðu um hvað skilur á milli 80% aðildar að Evrópusambandinu og 100% aðildar að Evrópusambandinu?

Ritari ætlar að segja já í atkvæðagreiðslu á morgun, sóma síns vegna.“

Sem fyrr segir er grein Vilhjálms mun lengri og hana er að finna í Mogga dagsins í dag.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: