Stjórnmál:
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Í síðustu grein minni, Handarbakssmiðurinn snýr aftur, rakti ég nokkur af þeim málum sem fylgt hafa Bjarna Benediktssyni í gegnum stjórnmálaferil hans. Þar var sjónum beint að langri röð deilumála, vanhæfismála, pólitískra áfalla og traustsbrests sem hafa markað leið hans til valda og frá þeim aftur.
En það er önnur hlið á þessari sögu sem vert er að skoða. Hún snýst ekki um skandalana heldur árangurinn. Eða réttara sagt skortinn á honum.
Sama mynstur
birtist víðar.
Áður en Bjarni varð formaður Sjálfstæðisflokksins hafði flokkurinn um áratugaskeið verið stærsti stjórnmálaflokkur landsins og mældist gjarnan með 34 til 40 prósenta fylgi. Þegar Bjarni leiddi flokkinn í sínar fyrstu kosningar fékk hann um fjórðung atkvæða. Fylgi flokksins náði aldrei fyrri hæðum á hans vakt og í síðustu kosningum undir hans forystu hafði það dregist enn frekar saman og var komið niður í 19%.
Þetta er staðreynd sem erfitt er að komast fram hjá. Enginn formaður í sögu flokksins hefur setið jafn lengi við stjórn og skilað jafn litlu í fylgi og kosningaúrslitum miðað við þá stöðu sem hann tók við.
Sama mynstur birtist víðar. Fyrir hrun kom Bjarni að forystu fyrirtækja á borð við BNT og N1 sem misstu niður um sig. Eftir hrun varð hann einn valdamesti stjórnmálamaður landsins, fyrst sem fjármálaráðherra og síðar forsætisráðherra.
Á þeim tíma var ríkissjóður rekinn með verulegum halla. Þegar litið er yfir þann tíma sem Bjarni bar mesta ábyrgð á ríkisfjármálunum nam hallinn (tap ríkisins) að jafnaði um 36 milljörðum króna á ári. Það jafngildir í grófum dráttum árlegum rekstrarkostnaði lögreglunnar í landinu.
Auðvitað er ekki hægt að skrifa alla þróun samfélagsins á reikning eins manns. En það er jafn erfitt að benda á afgerandi árangur sem réttlætir þann mikla trúnað sem Bjarni naut hjá flokki sínum og stjórnmálakerfinu um árabil.
Það vekur því furðu að stjórn Samtaka atvinnulífsins hafi komist að þeirri niðurstöðu að einmitt þessi maður sé best til þess fallinn að verða andlit samtakanna og leiða þau inn í viðkvæmar kjaraviðræður.
…langur listi deilumála,
áfalla og lakra
niðurstaðna.
Kjarasamningar byggjast ekki aðeins á þekkingu á hagfræði og rekstri. Þeir byggjast á trausti, trúverðugleika og hæfni til að ná árangri í samskiptum við ólíka hópa. Þar skiptir orðspor máli. Þar skiptir fyrri reynsla máli. Þar skiptir árangur máli.
Það er einfaldlega ekki nóg að koma af þekktri viðskiptaætt, vera vel tengdur eða hafa setið lengi við völd. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa að fólk í forystu hafi sýnt fram á getu til að skila árangri og byggja upp traust.
Þegar ferill Bjarna Benediktssonar er skoðaður blasir hins vegar við langur listi deilumála, áfalla og lakra niðurstaðna. Það er því eðlilegt að spyrja þeirrar spurningar sem margir hafa á vörum sér:
Hvað voru Samtök atvinnulífsins eiginlega að pæla?