- Advertisement -

Ýmislegt jákvætt við úrslitin

Ólafur Stephensen skrifaði:

Greinin er birt á Facebook. Hér er upphaf greinarinnar:

„Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið liggja fyrir. Ég er gríðarlega sáttur við að þjóðin hafi loksins fengið að segja sitt um þetta mikilvæga mál. Hin lýðræðislega niðurstaða liggur fyrir og þá er ljóst að ekki verður farið í aðildarviðræður við ESB á næstu árum. Og þó að það sé ekki niðurstaðan sem ég kaus, er ýmislegt jákvætt við hana; það ætti að vera hægt að ná sæmilega breiðri pólitískri samstöðu um nokkur mikilvæg mál nú þegar aðildarspurningin hangir ekki lengur yfir okkur.

Í fyrsta lagi hefur forysta stjórnarandstöðuflokkanna, a.m.k. Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, lýst þvi skýrt yfir að Evrópusamstarf sé mikilvægt og að við eigum að hafa sem nánast samstarf við ESB, þótt við göngum ekki inn. Nú geta forystumenn þessara flokka hætt að hlaupa upp til handa og fóta og æpa að það sé verið að reyna að smygla Íslandi inn í ESB í hvert skipti sem gerður er nýr samningur eða samkomulag við sambandið, hvort sem það er um samstarf í varnar- og öryggismálum, sjávarútvegsmál eða eitthvað annað sem eflir tengsl Íslands við þetta bandalag lýðræðisríkja og sinn langmikilvægasta markað. Aðild er ekki á dagskrá og þá ættum við að geta gengið til nánara samstarfs án þess að allt fari á annan endann. Nánara samstarf við ESB auðveldar Íslandi að gæta hagsmuna sinna án þess að þurfa að ganga inn.“

Sjá alla greinina hér.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: