- Advertisement -

Hvers virði eru loforð sem enginn hefur hugmynd um hvernig á að fjármagna?

Stjórnmál:

Guðmundur Þ. Ragnarsson, fyrrum formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna, skrifaði:

Það er orðin mín upplifun að stór hluti þess sem ríkisstjórnin kynnir varðandi framtíðarplön sín í hinum ýmsu málaflokkum og aðrar breytingar í samfélaginu sé lítið annað en ófjármögnuð innantóm fyrirheit. Áætlanir eru kynntar með miklum tilþrifum á fjölmörgum sviðum, en þeir sem þekkja til vita að án raunverulegrar fjármögnunar verða þær aldrei að veruleika.

Á sama tíma glíma stofnanir ríkisins við fjárskort eftir margra ára niðurskurð og sveitarfélög hafa ítrekað fengið ný verkefni frá ríkinu án þess að nauðsynlegir fjármunir fylgi.

Því vaknar upp sú spurning hvort verið sé að beina athyglinni frá þeim raunveruleika sem blasir við í daglegum rekstri opinberra aðila.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Guðmundur Þ. Ragnarsson greinarhöfundur.
Ég er orðinn þreyttur á endalausum loforðum sem aldrei verða að veruleika.

Umræðan í samfélaginu snýst gjarnan um mistök stjórnmálamanna og einstök klúðurmál sem nóg er af, en brýnustu viðfangsefni samfélagsins sitja á hakanum. Ríkisstjórnin leggur mikla áherslu á hallalaus fjárlög, en minni áhersla virðist lögð á að ræða hvaða áhrif niðurskurðurinn hefur á þjónustu við almenning. Þar fer ekki alltaf saman hljóð og mynd.

Að mínu mati ætti að setja þá meginreglu að allar stórar aðgerðir og framtíðaráætlanir sem stjórnvöld kynna verði að fylgja skýr og raunhæf fjármögnun. Slíkt myndi færa umræðuna nær veruleikanum og skapa betri aga í opinberum fjármálum. Þá yrði jafnframt erfiðara að lofa verkefnum sem hvorki fjárhagslegt né framkvæmdalegt svigrúm er fyrir.

Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að þetta sé ein af forsendum vitræns reksturs ríkissjóðs. Ávinningurinn væri ekki aðeins skýrari forgangsröðun heldur einnig málefnalegri stjórnmálaumræða þar sem raunhæfar forsendur og kostnaður væru metin samhliða fyrirheitum.

Ég er orðinn þreyttur á endalausum loforðum sem aldrei verða að veruleika.

Íslenskt samfélag þarf ekki meira af glærusýningum og fallegum slagorðum. Það þarf stjórnvöld sem þora að horfast í augu við raunveruleikann, forgangsraða verkefnum og fjármagna það sem þau lofa.

Traust byggist ekki
á fyrirheitum
heldur efndum.

Á meðan hægt er að lofa hverju sem er án þess að sýna hvernig eigi að borga fyrir það verður pólitíkin áfram leikrit þar sem orð eru ódýr en afleiðingarnar dýrar.

Ef Alþingi vill endurheimta traust almennings þarf það að setja sjálfu sér þann aga að ekkert sé lofað og samþykkt nema hægt sé að standa við það.

Traust byggist ekki á fyrirheitum heldur efndum. Þangað til það verður leiðarljósið mun froðan halda áfram að fljóta ofan á meðan raunveruleg vandamál samfélagsins halda áfram að aukast.

Kannski er kominn tími til að spyrja einföldustu spurningarinnar af öllum.

Hvers virði eru loforð sem enginn hefur hugmynd um hvernig á að fjármagna?

Svarið blasir við. Þau eru einskis virði. Þau skapa aðeins falskar væntingar, meiri vonbrigði og sífellt minna traust á stjórnmálunum. Íslendingar eiga skilið meira en froðu. Þeir eiga skilið heiðarleika um hvað er hægt að gera og hvað verður að bíða. Það er góð stjórnsýsla því það er ljótt að vera alltaf að segja ósatt.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: