
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, skrifar:
Birgir Þórarinsson, fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á mikið hrós skilið. Hann er dæmi um einstakling sem situr ekki þegjandi hjá heldur gengur í verkin hversu stór eða lítil sem þau eru. Með þrautseigju, góðum tengslum og virðingu fyrir öllum hlutaðeigandi lagði hann sitt af mörkum til að Elizabeth Tsurkov fengi frelsi. Þetta er áminning um styrk Íslands og Birgir hefur sýnt í verki hvað ábyrg forysta getur gert. Við gleðjumst með fjölskyldu Elizabeth og þökkum Birgi fyrir þetta göfuga og mikilvæga starf. Það er dýrmætt fyrir okkur Íslendinga að eiga fólk eins og Birgi