- Advertisement -

Loka Vesturbæjarlauginni aftur

Vesturbæjarlaug verður lokað klukkan 20.00 í kvöld og verður hún lokuð í um það bil viku. Því miður hefur komið í ljós galli á málningarvinnu á laugarbotninum, sem hefur valið því að málning er tekin að flagna af laugarkarinu.

Viðhaldsframkvæmdir hafa staðið þar yfir í sumar þar sem markmiðið var að bæta aðstöðu gesta og endurnýja eldri mannvirki. Laugin var opnuð á ný 19. júní síðastliðinn.

Nú hefur komið í ljós að málningin er farin að flagna af laugarkarinu sem rekja má til mistaka í grunnvinnu við endurbæturnar. Verktakinn sem bar ábyrgð á verkinu harmar þetta mjög, tekur fulla ábyrgð og mun standa straum af öllum kostnaði við úrbætur.

Unnið hratt og örugglega næstu daga

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ákvörðun hefur verið tekin um að loka lauginni klukkan 20.00 í kvöld, mánudaginn 18. ágúst. Veðurskilyrði næstu daga gera kleift að vinna verkið hratt og örugglega, og er því mikilvægt að ráðast í úrbætur strax. 

Stefnt er að því að Vesturbæjarlaug verði opnuð aftur áður en skólasund hefst.

Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda. Við hlökkum til að taka á móti gestum að nýju að viðgerð lokinni.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: