- Advertisement -

Íslenskur almenningur á betra skilið

Alþingi:

„Á endanum snýst þetta því miður oft um krónur og aura. Það virðist endalaust peningur til þegar kemur að utanríkisráðuneytinu, hvort sem það er í hinsegin samtök í Bandaríkjunum upp á 150 millj. kr., ESB-aktívista sem ráðnir eru inn án starfslýsingar svo að hleypur á öðrum tugi milljóna króna og á meðan sitja raunveruleg öryggis- og varnarmál landsins á hakanum í dómsmálaráðuneytinu. Lögreglumál og sérsveitarmál eru vanfjármögnuð og nú síðast er sagt frá því að það vanti 700 millj. kr. upp á landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli svo viðunandi sé. Þarna erum við raunverulega að tala um gæluverkefni á kostnað öryggis almennings í landinu, sem er vel að merkja frumskylda ríkisvaldsins. Eins og fyrrverandi háttvirtur þingmaður Viðreisnar sagði, frú forseti, með leyfi yðar, þetta fólk er „ekki að performera af því að það er í áfalli“. Íslenskur almenningur á betra skilið,“ sagði Snorri Másson, varaformaður Miðfokksins, á Alþingi.

Ræða hans var lengri og hér er hægt að lesa hana alla.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: