ALÞINGI:
Þingmennirnir fimm sem fóru í leyfisleysi í sund á Vopnafirði urðu sér til mikillar skammar. Telja sig hafna yfir lög og reglur. Áfengisdrykkja í boði ensks auðkýfings bæri ekkert stöðu þeirra. Alls, alls ekki. Þingmennirnir líta á sjálfa sig sem öðrum æðri. Á dv.is er fjallað um þetta framferði þingmannanna.
Þingmennirnir eru Jens Garðar Helgason Sjálfstæðisflokki, frá Miðflokki voru tveir; formaðurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Þorgrímur Sigmundsson. Frá Framsókn voru Þórarinn Ingi Pétursson og Ingibjörg Isaksen, sem var eina konan í hópnum.
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar um sundferðina á dv.is. Í grein hennar segir meðal annars:
Það er alltaf
fréttnæmt þegar
þingmenn fara
ekki eftir reglum.
„Þingmenn eiga mætavel að vita að lítið má út af bregða í framferði þeirra. Verði þeim stórlega á er þeim hegnt fyrir það en smá feilspor getur líka orðið að óþægilegri frétt sem fólk hefur unun af að kjamsa á. Góðu fréttirnar fyrir þingmenn eru að þessar vandræðalegu fréttir gleymast yfirleitt á örfáum vikum. Það á mjög líklega við um nýlega uppákomu þegar nokkrir þingmenn ákváðu að fá sér sundsprett í sundlaug utan opnunartíma.
„Þetta er engin frétt og gerðist utan vinnutíma,“ sögðu Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, og Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, þegar fréttist að þau, ásamt þremur öðrum þingmönnum Norðausturkjördæmis, hefðu í kjördæmaviku stolist í sund í Selárlaug í Vopnafirði um kvöld þegar sundlaugin var lokuð.
Sjálfsagt er að fyrirgefa þingmönnunum fimm bjánalegt uppátæki þeirra. Þeir hafa vonandi lært af því og einnig áttað sig á því að sundlaugarferð þeirra var sannarlega efni í krassandi frétt. Frétt sem var þeim ekki til sóma.“
Síðar í greininni skrifar Kolla:
„Bæði Ingibjörg og Jens eiga að vita betur en að halda því fram að framferðið hafi ekki verið fréttnæmt, þótt ekki flokkist það sem umfangsmikill glæpur. Það er alltaf fréttnæmt þegar þingmenn fara ekki eftir reglum og ekki síður þegar þeir aðlaga reglur að eigin hentugleika. Þá skipir ekki máli hvort þeir gera slíkt á vinnutíma eða utan hans. Þegar þingmennirnir ákváðu að skella sér í sund voru þeir að senda þau skilaboð að reglur um opnunartíma eigi ekki við þá.“
Óttar Guðmundsson skrifar einnig á dv.is. Hann skrifaði til dæmis:
„Einhverjir úrtölumenn hafa hneykslast á þessu þjóðlega athæfi þingmannanna. Slíkt fólk áttar sig ekki á því hversu góð áhrif það hefur á gang landsmálanna þegar bosmamiklar þingkonur sitja berbrjósta með góðglöðum samþingmönnum sínum í heitu vatni. Við slíkar kringumstæður má sameinast um nýja þjóðarsátt gegn verðbólgu- og vaxtadraugnum.“