- Advertisement -

Algjörlega óboðleg framganga ráðherra

Alþingi:

Sigríður Á. Andersen var óhress með framgöngu ráðherra á Alþingi í dag. Hún sagði:

Mál sem er hér
að kljúfa þjóðina.

„Í ljósi síðustu óundirbúnu fyrirspurnarinnar sem hér fór fram, þá einkum og sér í lagi þeirra viðbragða frá hæstv. innviðaáðherra sem sú óundirbúna fyrirspurn fékk, vil ég nefna það hér, sem hefur verið nefnt áður í fundarstjórn forseta, að þessi skammi tími sem þingmönnum er veittur til að fá svör um pólitíska afstöðu ráðherra til tiltekinna mála fer æ oftar út um þúfur vegna þess að hæstv. ráðherrar svara í engu um það sem verið er að spyrja. Ég heyrði ekki betur en að hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson hefði verið að spyrja hæstvirtan innviðaráðherra um hvað honum fyndist. Þá fékk hann það svar að það þýddi ekkert að spyrja um hvað honum fyndist. Það var verið að spyrja um hvað hæstvirtum ráðherra fyndist um tiltekið mál, mál sem er hér að kljúfa þjóðina, mál sem verður þungt í þinglegri meðferð, sem er bókun 35 og málsmeðferð fyrir EFTA-dómstólnum, og hæstv. ráðherra getur bara vel svarað því hvað honum finnst eða hvað hann telur í þeim efnum. Fyrir utan að vera löglærður maður hlýtur hann að geta svarað þessari einföldu spurningu sem að honum var beint, hvort hann trúi því að málshöfðunin yrði látin niður falla ef þessu máli sem liggur hér fyrir yrði þrýst í gegn. Og hæstvirtur utanríkisráðherra svaraði því heldur ekki í fyrirspurn frá mér. Þetta er, virðulegur forseti, algjörlega óboðlegt hér dag eftir dag, þetta svaraleysi hæstvirts ráðherra.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra:

„Ég hef kannski ekki verið nógu skýr. Varðandi spurninguna, hvort ég teldi að ESA ætti að afturkalla málið fyrir EFTA-dómstólnum, samningsbrotamál gegn Íslandi, þá veit ég það ekki. Ég vona að þeir geri það. Ég vona að þeir dragi málið til baka vegna þess að það er ekki gott að vera í samningsbrotamáli. Ef við samþykkjum bókun 35 ættu þeir að gera það. En hvað ég tel að þeir muni gera, það verður að spyrja þá um, ekki mig. Ég stjórna ekki ESA. Ég vona að þeir myndu draga það til baka, þá losnum við við þetta samningsbrotamál. Það kemur inn í íslenskan rétt og mun á endanum fara fyrir Hæstarétt Íslands eins og önnur mál sem lúta að EES-samningnum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: