Seðlabankinn:
Sigurjón Magnús Egilsson skrifaði:
Það er forsætisráðherra sem skipar Seðlabankastjóra og Seðlabankinn heyrir undir forsætisráðherra. Þórarinn V. Pétursson varaseðlabankastjóri hefur upplýst okkur öll um „launráð“ Seðlabankans. Þar sem hann sagði: „…„…búið til til þær efnahagsaðstæður þar sem ekki verður áhugi fyrir að segja þeim upp, það er að segja að búa til nógu mikinn slaka í þjóðarbúinu þannig að atvinnuleysi verði orðið það nógu mikið að það verði ekki áhugi fyrir að segja upp þessum samningum.“
Finnst Kristrúnu forsætisráðherra þetta í lagi og ef ekki, hvað þá.
Ég skrifaði forsætisráðherra nokkrar spurningar sem mig langar að fá svör við. Bréfið til Kristrúnar fer hér á eftir:
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.
Mig langar að leggja fyrir þig eftirfarandi spurningar:
Finnst þér að eðlilegt að Seðlabankastjóri, og hans nánasta samstarfsfólk, hafi: „…búið til til þær efnahagsaðstæður þar sem ekki verður áhugi fyrir að segja þeim upp, það er að segja að búa til nógu mikinn slaka í þjóðarbúinu þannig að atvinnuleysi verði orðið það nógu mikið að það verði ekki áhugi fyrir að segja upp þessum samningum.“
Hefur þú, eða minnt þú, kalla Seðlabankastjóra til samtals við þig um þessar upplýsingar sem varaseðlabankastjóri hefur upplýst þjóðina um?
Kemur til greina;
a) að setja Ásgeir Jónsson af sem Seðlabankastjóra?
b) að þú ávítir Ásgeir Jónsson?
c) hefur traust þitt til Ásgeirs og þá til Seðlabankans breyst eftir „uppljóstrun Þórarins varaseðlabankastjóra?
d) að lokum, ef þér finnst að stjórnendur Seðlabankans hafi breytt rétt þegar þeir stefna að auknu atvinnuleysi þér og ríkisstjórninni sæmandi.
Kær kveðja,
Sigurjón Magnús Egilsson blaðamaður.