- Advertisement -

Guðmundur Ingi greindist með krabbamein

Alþingi:

Guðmundur Ingi Kristinsson sagði í ræðustól Alþingis að hann hefði greinst með krabbamein:

„Í dag er bleiki dagurinn. Með leyfi forseta segir á heimasíðu Krabbameinsfélagsins:

„Á bleika deginum sameinast samfélagið allt í stuðningi og hluttekningu með fólki og aðstandendum þeirra sem glíma við krabbamein eða hefur gert það og minnist þeirra sem við höfum misst úr krabbameinum. Bleiki dagurinn einkennist af samstöðu sem við hjá Krabbameinsfélaginu heyrum oft hve miklu máli skiptir fólk. En við heyrum líka af því að hann getur verið áminning um erfiðar stundir og það skulum við hafa bak við eyrað.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Beið í meira en ár.

Síðar í ræðunni sagði Guðmundur Ingi: „Nú er rétt tæpur mánuður síðan var tekinn blettur af fæti mínum sem reyndist vera krabbamein. Til þess að geta farið í þessa leit þurfti ég að bíða í rúmt ár. Mér skilst að þessi tími muni lengjast mikið. Ég var heppinn. Það sem reyndist vera hjá mér var krabbamein en í lottóinu þá vann ég vegna þess að þetta var staðbundið og hægt að taka það. Hvers vegna var það komið? Jú, út af sólbekkjum, segja þeir, og sólarljósinu. Ef fólk brennur á það á hættu að lenda í þessari stöðu en þá er líka hætta á að fá sortuæxli sem er enn þá alvarlega. Þess vegna segi ég að við verðum að sjá til þess að biðtími verði styttur þannig að fólk sem þarf á þjónustu að halda geti virkilega farið og fengið þjónustu og þurfi ekki að bíða í ár eða tvö eða þrjú ár.“

Guðmundur Ingi sagði einnig:

„Bleiki dagurinn snýst nefnilega ekki bara um að klæðast bleiku frá toppi til táar og gera sér glaðan dag, hann er líka innihaldsríkur. Bleiki dagurinn gefur tækifæri til að skapa góðar og innihaldsríkar stundir með hverjum þeim hætti sem fólki hentar, hvar sem er á heimilum, á vinnustöðum eða í skólum og hvernig sem aðstæður eru. Hver stund skiptir máli og við viljum nýta tímann með sem bestum hætti.

Við hjá Krabbameinsfélaginu þökkum samfélaginu af öllu hjarta fyrir stuðninginn í bleiku slaufunni og fyrir að taka undir með okkur á bleika daginn.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: